Ef einhver trúir því að öllu kynlífi sé lokið þegar komið er á eftirlaunaaldur, getur sá hinn sami hugsað sig tvisvar um. Í Danmörku er það jafn stór hluti fólks 65 ára og eldra, og allra annarra, sem upplifir kynlíf sem stóran og þýðingarmikinn hluta af lífinu. Fólk elskast á milli laka, stundar sjálfsfróun, horfir á klám og leikur sér með kynlífsleikföng langt fram eftir aldri. Þetta kemur fram í risastórri nýútkomni könnun um kynlíf danskra eldri borgara. Könnunin er sú stærsta af sinni tegund í heiminum. 62.000 manneskjur á aldrinum 15-89 ára tóku þátt henni og var hún unnin af Háskólanum í Álaborg og stofnun sem heitir Statens Serum Institut.
„Eldri manneskjur eru jafn mismunandi og allir aðrir. Kynlífsáhuginn hverfur ekki einungis vegna þess að þú verður eldri“, segir á heimasíðunni sundhead.dk.
Sáttir við kynlífið.
Um helmingur eldri borgara segist í könnuninni lifa góðu eða mjög góðu kynlífi, ef þeir horfa til baka síðasta árið. Þessi jákvæða upplifun á við um aðeins fleiri konur en karlmenn. Næstum þriðji hver Dani, karlar og konur, í aldurshópnum 65-74 ára segja að kynlífsþörfum þeirra sé mætt að öllu eða lang mestu leyti. Það sama gildir um fjórða hvern einstakling yfir 75 ára aldri. Í aldurshópnum 65-75 ára, höfðu 34% karla og 25% kvenna stundað kynlíf í síðustu viku. Það á einnig við um 19% karla og 12% kvenna í aldurshópnum 75 ára og eldri.
Risvandamál og gervilimir
Ef það á að krydda aðeins upp á heimaleikfimina, eru gevilimir, vibratorar eða önnur kynlífsleikföng oft tekin með í leikinn. 15% af hópnum 65-75 ára segjast hafa prufað einhver erótísk leikföng síðasta árið. Í hópnum 75 ára og eldri eru 6% sem leika sér til dæmis með gervilimi og vibratora. Þegar vandmál gera vart við sig í kynlífi eldri borgara er það oft vegna risvandamála hjá karlmönnunum, sem aukast þegar karlarnir komast yfir 75 ára aldurinn. Hjá konum eru helstu vandamálin, meðal annars þurrkur í leggöngum.
Taka til sinna ráða ef kynlíf er ekkert
61% kvenna og 43% karla í hópnum 75 ára og eldri, segjast ekki hafa stundað kynlíf með aðila af gagnkvæmu kyni síðasta árið. Í hópnum 65-74 sögðust 25% karla og 40% kvenna, ekki hafa gert það. Fólk deyr þó ekki ráðalaust og sumir taka málin í eigin hendur samkvæmt könnuninni. Þriðji hver karl á aldrinum 65-75 ára stundar sjálfsfróun að minnsta kosti einu sinni í viku og það sama á við um áttundu hverja konu. Fyrir fólk eldra en 75 ára eru sambærilegar tölur fimmti hver karl og þrettánda hver kona.
Eldri konur ekki fyrir klám.
Karlmennirnir horfa á klám. Fjórði hver karl á aldrinum 65-75 ára horfir á klám einu sinni eða oftar í viku og áttundi hver karl á aldrinum 75 ára og eldri. En samkvæmt könnuninni virðist klámið ekki höfða til kvenna. Minna en 1% kvenna, 65 ára og eldri, hefur áhuga á að fylgjast með öðru fólki stunda kynlíf.