Frábær árangur íslensku kvennanna á GlobalWIIN

Íslenskar konur voru sigursælar á GlobalWIIN hátíðinni í ár. Hvorki meira né minna en sjö íslenskar konur unnu til verðlauna fyrir fimm nýsköpunarverkefni. Að þessu sinni var GlobalWIIN haldin í London dagana 2.-3. október. GlobalWIIN (Women Inventors and Innovator Network) eru  alþjóðasamtök kvenna í nýsköpun sem árlega veita konum á öllum sviðum nýsköpunar hvatningarverðlaun. Í ár voru 75 konur tilnefndar frá 23 löndum.

Í fréttatilkynning frá KVENN félagi kvenna í nýsköpun kemur eftirfarandi fram: 

Íslensku konurnar sem unnu til verðlauna eru:

Hraundís Guðmundsdóttir – Hraundís, íslenskar ilmkjarnaolíur (EXEMPLARY SPECIAL RECOGNITION AWARD)  www.hraundis.is  / sími 8641381

Björg Árnadóttir – Stílvopnið – valdefling og sköpun (SPECIAL RECOGNITION AWARD) www.stilvopnid.is / sími 8996917

Ólöf Rún Tryggvadóttir – Eylíf heilsa (SPECIAL RECOGNITION AWARD) www.eylif.is / sími 8614041

Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir – Catecut (SPECIAL RECOGNITION AWARD) www.catecut.is / sími 6948850

Dögg Gudmundsdóttir, Heiðdís Einarsdóttir og Þórhildur Einarsdóttir – Aska Bio Urns (SPECIAL RECOGNITION AWARD) www.askabiourns.com / sími 8916304

Dögg Guðmundsdóttir var einnig tilnefnd fyrir hönd Danmerkur – A peaceful place (ONE GOLD EXCEPTIONAL CREATIVE AWARD) www.doggdesign.com  / sími (+45) 26 17 09 05

Uppfinningaríkidæmi, nýsköpun og þrautseigja verðlaunuð

Hraundís hefur vakið athygli fyrir ekta ilmkjarnaolíur úr íslenskum jurtum, Björg hefur þróað skapandi, valdeflandi og inngildandi aðferðir í ritlistarkennslu hérlendis og erlendis, Ólöf Rún framleiðir fæðubótarefni úr hreinum, íslenskum hráefnum frá sjálfbærum auðlindum, Heiðrún hefur hannað app til að koma í veg fyrir sóun með markvissari fatakaupum á netinu og Dögg hlaut verðlaun fyrir tvö verkefni – annað ásamt Heiðdísi og Þórhildi – sem stuðla að sjálfbærum lausnum við greftrun.  Uppfinningakona ársins 2024 var valin hin finnska Aino Mustonen www.fatec.fi  sem þróað hefur leiðir til að nýta úrgang frá stál- og kolaiðnaði við framleiðslu á  nýrri tegund steypu.

Þrautseigja þessara kvenna er verðugt umfjöllunarefni fjölmiðla enda sýnir tölfræði um konur í nýsköpun mikla þörf fyrir að gera þátt þeirra sýnilegri.

Myndatexti   Sigursælir frumkvöðlar að verðlaunafhendingu lokinni: Fremri röð (t.v.): Dögg Guðmundsdóttir, Heiðdís Einarsdóttir, Björg Árnadóttir, Hraundís Guðmundsdóttir. Efri röð (t.v.): Þórhildur Einarsdóttir, Elínóra Inga Sigurðardóttir og Ólöf Rún Tryggvadóttir. Á myndina vantar Heiðrúnu Ósk Sigfúsdóttur.  Ljósmynd: Linda Gould/GlobalWIIN.

Ritstjórn október 12, 2024 07:00