Um 65 ára aldur fara margir að huga að því að hægja á, sumir vilja minnka við sig vinnu og undirbúa eftirlaunaárin vel. Það hefur því færst í vöxt að fólk byrji að taka lífeyri að hluta áður en hinum hefðbundna eftirlaunaaldri er náð. Að mörgu er hins vegar að hyggja ef fólk ætlar að gera það. Lifðu núna barst erindi frá konu sem hóf að taka lífeyri þessum tveimur árum fyrr en nú lítur út fyrir að það hafi ekki borgað sig.
„Ég hóf að taka lífeyri frá VR og fleiri sjóðum þegar ég var 65 ára og hefur það munað miklu fyrir mig,“ segir hún. „Ég missti vinnuna og fékk eingöngu hlutastarf. Lífeyrisgreiðslurnar eru innan við 200 þúsund en það bjargaði mér samt. Systir mín, ári yngri, ætlaði að gera það sama en þetta hefur breyst, annað hvort getur hún tekið lífeyri frá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun, eða ekkert. Greiðslur frá TR eru einnig ansi mikið lægri ef maður byrjar 65 ára en þær yrðu ef maður myndi bíða til 67 ára.
Mér bauðst svo nýlega vel launuð vinna og ætlaði þá að hætta að taka lífeyrinn en var sagt að það myndi engu breyta um hækkanir. Að þótt ég hætti að taka lífeyri næstu þrjú árin myndi það ekki vera metið til hækkunar á greiðslum frá TR. Minn árgangur 1958 er sá fyrsti sem fær ekki hærri mánaðarlegar greiðslur ef hann bíður með að taka lífeyri frá TR til sjötugs. Ég hef heyrt sagt að fáir græði svo sem á því, það þurfi að verða ansi gamall til að ná upp sömu upphæð og næðist ef maður byrjaði 67 ára að fá peninga mánaðarlega.“
Á vef TR inn á island.is er eftirfarandi upplýsingar að finna:
Því fyrr sem byrjar að taka greiðslur úr lífeyrissjóði því lægri eru greiðslurnar. ert 65 ára. Með snemmtöku lækka greiðslur ellilífeyris um 12,24%
Hægt er að fresta töku lífeyris frá Tryggingastofnun, líkt og hjá lífeyrissjóðum og fá hækkun á greiðslum vegna frestunarinnar varanlega.
Ef þú fæddist:
fyrir 1952, gildir hækkun á greiðslum til allt að 72 ára aldurs
1952 – 1957, gildir hækkun á greiðslum til allt að 80 ára aldurs
1958 eða síðar, þá helst frestunin í hendur við töku lífeyris frá lífeyrissjóðum. Eftir að taka lífeyris frá lífeyrirsjóðum er hafin þá er ekki lengur til staðar réttur á hækkun á lífeyri frá TR
Einstaklingur fæddur 1958 eða síðar byrjar á greiðslum úr lífeyrissjóði 67 ára. Sækir um hjá TR 70 ára. – Fær ekki hækkun þar sem hann er þegar kominn með lífeyri frá lífeyrissjóði.
Einstaklingur fæddur 1958 eða síðar byrjar á greiðslum frá TR 68 ára og á sama tíma frá lífeyrissjóði. – Fær hækkun fyrir 1 ár, þar sem hann nýtir ekki rétt sinn hvorki hjá TR né lífeyrissjóði því hann hefði getað byrjað 67 ára á lífeyri.
Þeir sem hyggjast halda áfram að vinna ættu því að kynna sér vel hvaða breytingar það hefði á þeirri upphæð sem þeir munu fá greiddar þegar að því kemur. Ef menn eru í vinnu og geta lifað af sínum tekjum getur því borgað sig að láta þær duga.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.