Allt frá því að fyrsta krossgátan var prentuð á pappír hafa þær notið gífurlegra vinsælda. Það er einfaldlega í eðli mannsins að hafa gaman af orðaleikjum. Tungumálið er eitt okkar allra fyrsta tæki til afþreyingar og gamans enda vita lítil börn fátt skemmtilegra en að babbla einhverja vitleysu. búa til orð og seinna flóknari leiki eins og orðafléttur og rím. Kannski er þess vegna ekkert skrýtið að glíman við krossgátur verði næsta skref. Sumir eru meira að segja ómögulegir fái þeir ekki krossgátu daglega að fást við. Þær auka auðvitað orðaforðann og geta einnig opnað augu manna fyrir margvíslegri blæbrigðamerkingu margra orða. En í kjölfar krossgátunnar hafa svo fylgt alls konar spurninga- og orðaspil sem mörg hver byggja auðvitað á sömu lögmálum og krossgátan.
Margir kjósa líka að spreyta sig á að búa til eigin krossgátur en það er annars konar og ekki síður flókið viðfangsefni. En krossgátur er nefnilega mjög persónulegar og gefa góða mynd af orðaforða og málskilningi höfunda þeirra. Það á ekki hvað síst við um svokallaðar vísbendingagátur en þá leita menn að orði út frá setningu sem á að gefa til kynna og vísa á orðið. Hluti af úrvinnslunni er þess vegna alltaf fólgin í að lesa í hug hans og finna út hvaða skilning hann leggur í tiltekin orð. Hann er ekki allaf sá sami og maður sjálfur hefur og getur verið hluti af leiknum en líka valdið pirringi. En allt er gott sem endar vel.
Í raun eru allar þrautir skemmtilegar og þær hafa tilgang. Þær eru nefnilega bæði þroskandi og hollar fyrir heilann. Að halda honum uppteknum er auðvitað stöðug viðleitni okkar allan daginn og vegna þess hve nauðsynlegt okkur er að hafa nóg um að hugsa og við að vera hefur maðurinn náð að búa til ótrúlegustu tæki, finna lausnir á alls konar vandamálum en líka koma sér í verstu vandræði. Það er hins vegar önnur saga en sjaldgæft að krossgátur leiði menn á glapstigu, svo vitað sé, en í njósna- og sakamálasögum, m.a. eftir Agöthu Christie eru þær stundum leið til að koma leynilegum skilaboðum milli elskenda eða glæpamanna.
Nú orðið er mikið úrval skemmtilegra þrautablaða og -bóka að finna í bókabúðum og víðar en auk þess að þjálfa heilann skapa þrautir hugarró og slökun. Á netinu er einnig að finna marga frábæra orðaleiki til afþreyingar lausnamiðuðum einstaklingum og veita ómælda ánægju meðan glímt er við að finna lausnirnar.







