Áhugaverð fjölskyldusaga Christinu Applegate

Christina Applegate hóf leikferilinn sextán ára þegar hún fékk hlutverk Kelly Bundy í sjónvarpsþáttaseríunni Married … with Children Hún þykir sérlega góð gamanleikkona og hef fengið Emmy-verðlaun fyrir góðan leik í gamanþáttum. Líf hennar tók óvænta stefnu árið 2008 þegar hún greindist með brjóstakrabbamein.

Hún ólst upp í Hollywood þar sem faðir hennar, Robert William Applegate, starfaði sem pródúsent og framkvæmdastjóri hjá plötuútgáfufyrirtæki.  Móðir hennar, Nancy Lee Priddy var söng- og leikkona en foreldrar hennar skildu skömmu eftir að hún fæddist. Christina á tvö hálfssystkini frá seinna hjónabandi föður síns, þau Alisiu og Kyle. Mamma hennar eignaðist ekki fleiri börn en hún var um tíma í ástarsambandi við tónlistarmanninn Stephen Stills.

Kannski ekki undarlegt að hún hafi stefnt í þessa átt því hún fór oft með mömmu sinni í vinnuna og kom fram með henni í sápuróperunni, Days of Our Lives árið 1974, þá aðeins þriggja ára. Áður hafði hún komið fram í pelaauglýsingu fyrir Playtex aðeins fimm mánaða. Henni buðust næst hlutverk í kvikmyndunum Jaws of Satan og Beatlemania. Eftir það var leiðin greið og hún vann jöfnum höndum í sjónvarpi og kvikmyndum. Þegar henni bauðst að leika eitt aðalhlutverkið í Married … with Children tók hún því og lék daðurdrósina Kelly Bundy allt þar til framleiðslu þáttanna var hætt árið 1997.

Ótrúleg velgengni

Meðfram þáttunum lék hún í ýmsum kvikmyndum. Hún vakti fyrst heimsathygli í hlutverki Sue Ellen Crandell í myndinni Don’t Tell Mama the Babysitter is Dead. Í kjölfarið fylgdu margar unglinga og gamanmyndir sem nutu mismikilla vinsælda. Christina fékk People’s Choice-verðlaunin árið 1998 fyrir aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Jesse og sama ár var hún tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna og fékk verðlaun TV Guide fyrir að vera besta kvenstjarna í aðalhlutverki Þessi ljóshærða stúlka hafði sýnt og sannað að hún var komin til að vera. Ný öld gekk í garð og Christina var vinsælli en nokkru sinni fyrr. Hún lék systur Rachel í nokkrum þáttum af Friends og hlaut önnur Emmy-verðlaun fyrir. Hún fékk einnig mikið lof fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni The Sweetest Things og Surviving Christmas.

Um þetta leyti ákvað hún að reyna fyrir sér á sviði og kom fram í Axeman’s Jazz á Broadway og í framhaldi af því í leikverkunum, Nobody Leaves Empty Handed og The Runthrough. Hún lék á móti Ginu Rowlands í leikverki manns hennar, Johns Cassavetes, The Third Day.  Christina er snjall dansari og hefur stundað dans frá unga aldri. Hún sló algerlega í gegn í söngleiknum Sweet Charity sem sýndur var á Broadway árið 2005 en hann var fyrst sýndur þar árið 1966. Meðan á sýningum stóð fótbrotnaði Christina en tókst engu að síður að klára samning sinn. Framleiðendurnir ætluðu að hætta við sýninguna en sérhannaðir skór hjálpuðu henni að dansa þrátt fyrir brotið og Christina var tilnefnd til Tony-verðlauna sem besta leikkona í söngleik. Þessi mikla áreynsla hafði hins vegar þau áhrif að líklega mun hún aldrei geta endurtekið leikinn og dansað aftur.

Í leit að föðurömmu sinni

Næstu árin vann Christina að mestu í sjónvarpi. Ýmsar vegtyllur héldu áfram að hrúgast að henni og nefna má að hún komst á lista People Magazine yfir hundrað fegurstu manneskjur heims. En þegar hún fór í þáttinn, Who Do You Think You Are? hjá TLC-sjónvarpstöðinni var margt sem kom henni rækilega á óvart. Þeir þættir snúast um að skoða fjölskyldu- og ættarsögu þáttakenda. Christina vonaðist til að framleiðendurnir gætu varpað einhverju ljósi á hvað hefði komið fyrir föðurömmu hennar, Laviniu Applegate Walton en hún dó ung og tók lítinn þátt í uppeldi sonar síns.

Það eina sem Robert Applegate taldi sig vita um móður sína var að hún hefði verið barin til dauða fyrir utan bar í Trenton í New Jersey þar sem hann ólst upp. Föðuramma hans tók hann að sér og hann bjó hjá henni þar til hún var of gömul til að hugsa um hann þá flutti hann til föður síns. Hann vissi ekki einu sinni hvað hún hét fullu nafni. Christinu tókst að hafa upp á því í þættinum og komst að því að Lavinia kom af vellauðugu fólki sem fór illa út úr kreppunni í Bandaríkjunum. Henni stóð því ekki til boða og mennta sig og aðeins nítján ára þegar giftist hún Paul Applegate. Þau bjuggu ekki saman fyrst eftir hjónabandið ef marka má íbúaskrár þessa tíma en samkvæmt upplýsingum sem fram komu í þættinum var ekkert óalgengt á þessum tíma að ungt fólk byggi enn hjá foreldrum sínum þótt það hefði gengið í hjónaband og reyndi að spara fyrir húsnæði. Robert fæddist því heima hjá móðurforeldrum sínum.

Augljóslega var eitthvað mikið að ungu konunni og hjónabandið harmleikur. Þau giftust í júní árið 1941 og í ágúst sama ár fer Lavinia frá manni sínum.  Þau taka aftur saman í janúar 1942 en hann rekur hana á dyr í maí það ár. Þau skilja endanlega árið 1945. Fyrir rétti sakar hún hann um ofbeldi, bæði andlegt og líkamlegt en hann hana um lauslæti og vanrækslu á barninu. Bæði halda þau fram að hitt sé alkóhólisti og vilja hvort um sig forsjá drengsins.  Lavinia fær forsjánna, enda þóttu ekki fram komnar nægar sannanir fyrir því að hún væri ófær um að sjá um barn. Hvers vegna hún lætur hann frá sér til fyrrum tengdamóður sinnar þegar hann er aðeins tveggja og hálfs árs er líklega vegna þess að hennar eigin móðir dó fljótlega eftir skilnaðinn og þá hafði Lavinia ekki lengur neina hjálp við uppeldið.

Með BRCA1 arfbera

Í ljós kom hins vegar að Lavinia lést ekki af völdum barsmíða heldur dó af skorpulifur aðeins þrjátíu og þriggja ára. Það er því augljóst hvers vegna hún treysti sér ekki til að halda drengnum. Þessi harmleikur snerti föður Christinu djúpt og fram kom í þættinum að hann hafði látið grafa á legstein Laviniu eftir að upptökum lauk: Mamma ég fann þig.

Christina giftist árið 2001 leikaranum Johnathon Schaech í Kaliforníu en þau skildu fjórum árum síðar og gengu frá lögskilnaði sín á milli árið 2007.  Það var svo í ágúst árið 2008 sem fjölmiðlafulltrúi hennar sendi frá sér tilkynningu um að leikkonan hefði greinst með brjóstakrabbamein en til allrar lukku hefði meinið uppgötvast það snemma að allar líkur væru á fullum bata. Hún gekkst undir tvöfalt brjóstnám þótt æxli hefði aðeins fundist í öðru brjóstinu því hún vildi tryggja að meinið tæki sig ekki upp aftur því í ljós kom að hún hefur í sér arfbera, BRCA1, sem gera hana líklegri en aðrar konur til að fá brjóstakrabbamein en mamma hennar hafði einnig greinst með krabbamein í brjósti og einnig lifað af.

Hún hitti tónlistarmanninn Martyn Noble árið 2009 og þau giftu sig árið 2013. Þau eiga saman dótturina Sadie Grace sem er þriggja ára. Christina tekur virkan þátt í ýmiss konar góðgerðastarfsemi og hefur einkum beitt sér fyrir félög sem styðja fátæk börn og að undanförnu fyrir félög sem safna fé til rannsókna á brjóstakrabbameini en undanfarin ár hefur hún einnig verið virk í að leggja lið rannsóknum á MS-sjúkdómnum en hún greindist með hann árið 2021. Hún sagði frá greiningunni í The Morning Show og það vakti athygli að hún lýsti baráttu sinni við hann sem skrýtnu ferðalagi. Margir MS-sjúklingar hafa vitnað í þau orð og sagt að hún hafi hitt naglann beint á höfuðið með þeirri lýsingu. Í mars sendi hún svo frá sér tilkynningum um að hún hefði dregið sig í hlé frá leiklistinni vegna skjálftakasta af völdum sjúkdómsins.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.