Lesendur sem lásu viðtalið við Gyðu Einarsdóttur vita að hún er gífurlega öflugur prjónari og lítur á prjónaskap sem sína hugleiðslu. Hún er nú að fylgja mér eftir í prjónaskap á minni fyrstu alvöru peysu. Verkið gengur ekki hratt fyrir sig en ég hef þurft að fara til Gyðu nokkrum sinnum og auk þess notað tæknina og tekið við hana nokkur myndsímtöl. Þess vegna er ég sannarlega á réttri leið og er núna komin upp að höndum og þá þarf ég að hitta Gyðu aftur. Næsta mynd verður með ermum líka.
Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.







