Augnháralengingar eftir sextugt – alveg fyrirtak

Augnháralengingar og gerviaugnhár eru mjög í tísku og margar yngri konur nýta sér það óspart. Aukahárin eru til úr bæði náttúrulegu hári eða silki og gerviefnum. Margir kjósa náttúrulegt hár en það er mýkra og líklegra til að detta af fyrr. Sé ekkert ofnæmi til staðar er ekkert því til fyrirstöðu að nota gerviefnin. Eldri konur ættu alls ekki að hika við að hoppa á vagninn og nýta sér þennan möguleika því kostirnir eru margir og mun fleiri en gallarnir.

Kostir:

Augnhárin styttast með árunum og með því að fá augnháralengingar eða bæta upp það sem hefur minnkað með gerviaugnhárum gerir konum kleift að halda lengur þeim augnsvip sem þær kjósa. Hver og einn velur lengdina á hárunum og alls ekki nauðsynlegt að vera meða áberandi löng eða óeðlilega löng augnhár.

Auk þess að velja lengdina er hægt að velja úr nokkrum tegundum misgrófra hára. Mýkri hárin eru mun eðlilegri en hin grófari. Almennt er einnig valinn ljósari litur fyrir eldri konur því mjög dökk hár geta dregið athyglina að línum í kringum augu.

Augnhárin og augabrúnirnar lýsast með árunum rétt eins og höfuðhárið. Með því að lengja augnhárin er verið að opna augun og gera þau meira áberandi.

Margir finna fyrir augnþurrki þegar árunum fjölgar og maskarar geta ýtt undir og aukið hann. Augnháralengingar og gerviaugnhár gera það ekki í sama mæli.

Ókostir:

Það þarf að halda útlitinu við. Rétt eins og þín eigin hár, detta hárlengingarnar af og þær þarf að laga eða endurnýja á 4-5 vikna fresti.

Þar sem hvert og eitt hár er límt á þín eigin hár er þetta tímafrekt og búast má við að minnsta kosti klukkustund í hvert sinn sem farið er í endurnýjun.

Ef konur hyggjast halda þessu við lengi verður það kostnaðarsamt því hvert skipti kostar á bilinu 12.000-16.000 kr.

Límið getur valdið ertingu í örfáum tilfellum en á flestum betri stofum eru eingöngu notuð ofnæmisprófuð efni.

Hvað ber að varast:

Ekki fara í gufubað ef þú ert með augnháralengingar. Gufan og hitinn leysa upp límið.

Ekki nudda augun, þá losna hárin og þín eigin augnhár eru líkleg til að fylgja með.

Þvoðu þér varlega með volgu vatni og bómul í kringum augum og reyndu að raska augnhárunum sem minnst. Ekki nota olíur til að hreinsa burtu farða eða augnskugga.

Ef farið er í kraftmikla sturtu daglega eða skömmu eftir að augnhárin eru sett á notið þá sundgleraugu til að verja augnhárin.