Grátt hár hefur aldrei verið vinsælla

Silfurrefir og silfurtófur skarta nú gráum lokkum og láta algjörlega vera að lita hárið. Það er einnig þónokkuð algengt að yngra fólk kjósi að lita hárið í gráum tónum til að fá á sig virðuleikablæ. Lengi vel trúðu menn og konur því að með því að lita hárið virkuðu þau yngri en það þarf alls ekki að vera svo. Fallega klippt og stílíserað grátt hár yngir ekki síður en dökkir lokkar og ljósir liðir.

Að hætta að lita hárið er frelsandi og opnar á ótal möguleika. Það er hægt að nota skol af og til ef fólk vill lífga upp á litinn eða breyta til. Með flottri klippingu og vel útfærðri greiðslu er gráa hárið virðulegt og mikill stíll yfir því. Breytingin getur verið dálítið þreytandi því það tekur tíma að leyfa litnum að vaxa úr og hárið getur verið leiðinlega tvískipt og asnalegt á meðan en vel þess virði þegar upp er staðið. Sumir telja að grátt hár njóti sín best stutt en það er vitleysa, margar stjörnur sem kjósa að skarta gráum lokkum hafa sýnt og sannað að svo er ekki.

App til að prófa greiðsluna áður en klippt er

Nú orðið er hægt að sækja sér app sem sýnir manni hvernig mismunandi hárklipping fer við andlitið. Það eina sem þú þarft að gera er að sækja appið og hlaða upp mynd af sjálfri/sjálfum þér og prófa þær greiðslur sem boðið er upp við þitt andlit. Þegar búið er að finna það sem hentar best er hægt að fara með myndina á hárgreiðslustofu og biðja snjallan hárgreiðslumeistara að klippa þig einmitt svona. En það að kjósa að leyfa hárinu vera í sínum náttúrulega lit sparar ótal stundir í stólum á hárgreiðslustofunni og langa bið með liturinn tekur sig. Þá þarf heldur ekki lengur að hafa áhyggjur hvernig gráa rótin stækkar og stækkar.

Silfurgrátt hár grípur ljósið á sérlega fallegan hátt og oft glansar grátt hár einstaklega glæsilega eða þegar blár blær kemur á hárið. Á það má líka benda að rauður varalitur passar sérlega vel við grátt hár og mjög margar konur sem leyfa silfurmakkanum að njóta sín kjósa hárrauða varaliti. Þekktust er án efa förðunarmeistarinn, Ragna Fossberg. Brúnn hörundslitur fer líka mjög vel gráhærðu fólki.

Grátt hár getur verið viðkvæmt fyrir þurrki og það hjálpar þess vegna upp á heilbrigði hársins að hætta að lita það og fólk ætti að velja vandaðar hárvörur til að viðhalda glansinum á hárinu. Ekki þvo hárið of oft og spara hárblásarann. Ef notuð eru heit tæki til að móta hárið að nota þá vernandi hárefni áður en þær eru dregnar fram. En hvort sem fólk kýs að lita hárið eða ekki geta allir verið sammála um að fólk sem líður vel í eigin skinni og er ánægt með sjálft sig nákvæmlega eins og það er aðlaðandi og skemmtilegt fólk.