Hégómagirndin hefur alltaf verið rík í manninum og líklega viljum við flest koma vel fyrir og líta vel út í augum annarra. Ef marka má sálfræðinga er þetta mjög eðlileg tilfinning. Að rækta útlit sitt er aðeins hluti af ástæðum þess að við sækjum snyrti- og hárgreiðslustofur Þangað sækjum við líka slökun og vellíðan sem hefur áhrif á hvernig við náum að höndla dagleg vandamál. Heimsókn á snyrtistofu er góð leið til að sýna sjálfum sér umhyggju. Þær eru líka hluti af rútínu flestra. Regluleg klipping, fótsnyrting eða augnabrúnalitun er jafnsjálfsögð og vel skipulögð hjá mörgum og tannlæknaheimsókn eða krabbameinsskoðun.
Breskir sálfræðingar skoðuðu viðbrögð fólks við lokunum hárgreiðslu- og snyrtistofa meðan kórónavírusinn lék lausum hala í heimalandi þeirra. Í ljós kom að leit manna að lausnum við óæskilegum hárvexti, siggi á fótum og öðrum útlitstengdum vanda í gegnum Google jukust til mikilla muna. Til dæmis var mun oftar slegið inn leitarorðum á borð við hvernig búa má til hármaska, andlitsmaska, snyrta neglurnar og heima spa en mánuðina áður en veiran lagði upp í sitt heimsferðalag. Jennifer Dragonette sálfræðingur hjá Newport Academy segir þetta ekkert skrýtið.
Fegrunarmeðferðir okkar séu hluti af okkar litla heimi og mikilvægur hluti af hversdagslífinu. Þegar álag eykst vegna utanaðkomandi áhrifa eru þessar venjur okkar enn mikilvægari. Það er því erfitt að missa þær úr lífinu. Þær eru leið til að veita okkur lúxus og gleði og ef allt væri eðlilegt eitthvað sem við myndum leita í. Fólki finnst þess vegna sú staðreynd að þær eru bannaðar til marks um að ástandið sé alvarlegt og langt frá öllu sem við myndum kalla venjulegt.
„Rútína hjálpar okkur að skapa stöðugleika og þá tilfinningu að við séum við stjórnvölinn,“ segir Jennifer Dragonette í viðtali við Good Housekeeping í Bretlandi. „Þegar við erum neydd til að sleppa okkar rútínu missum við rammann utan um líf okkar og það getur skapað kvíða og panik. Á óöruggum tímum getur það að fara eftir föstu skipulagi skipt miklu hvað varðar streitu og hugarró.“
Meðan á samkomubanni stóð hér á landi átti fólk misauðvelt með að aðlaga sig þeim breytingum sem urðu á lífinu. Hér á landi hafa vafalaust margir notað tækifærið og gúgglað hvernig þeir gætu sjálfir tekið af sér gervineglurnar, snyrt hendurnar, búið til andlitsmaska úr hráefnum í ísskápnum og gert tilraunir til að lita sjálfir sínar augabrúnir. Hvernig til tókst er ábyggilega misjafnt en það er eitthvað notalegt við að vera þó maður sjálfur þegar litið er í spegilinn á morgnana fremur en óvenjulega fölur einstaklingur með undarlegan háralit og óhreina húð. Það getur skapað meira sjálfstraust og finnast maður hafa betri stjórn á öllu saman ef manni tekst vel upp við að halda sér í því formi sem það er vant. Að slaka á með andlitsmaska eða gefa sér góðan tíma til að nostra við neglurnar er líka róandi og notalegt. Þess vegna er virkilega gott að taka sér spa-daga heima við af og til. Fara í fótabað og snyrta fæturna vel, snyrta neglurnar vel, bera á sig handaáburð, nota líkamsskrúbb, hreinsa nefhárin, raka sig eða snyrta skeggið, setja djúpnæringu í hárið og leggjast um stund út af með góðan húðmaska.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar







