Kraftur hugans er yfirskrift fræðslu um dáleiðslu og innri vellíðan sem fer fram á Borgarbókasafninu Sólheimum, miðvikudaginn 23. september frá kl. 18:30-20:00.
Þar fjallar Ingibjörg Bernhöft, hjúkrunarfræðingur og dáleiðslukennari, um dáleiðslu; hvernig hún getur komið að gagni í daglegu lífi og hjálpað okkur að skapa meiri ró, sjálfsraust og vellíðan.
Að sögn Ingibjartar er dáleiðsla náttúrulegt ástand hugans þar sem við slökum á, beinum athyglinni innávið og gefum okkur tækifæri til að vinna með hugsanir, tilfinningar og líðan á dýpri og mildari hátt.
Eftir spjall og spurningar í lok fræðslunnar býður Ingibjörg upp á hópdáleiðslu til að finna innri ró og auka sjálfstraust.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.







