Sumir finna fyrir því þegar árunum tekur að fjölga að þeir finna síður fyrir hungri og þorsta en áður. Það getur orðið til þess að fólk verður þurrt eða borðar ekki nægilega oft og vel yfir daginn. Til að tengja sig aftur við eðlilega skynjun líkamans á hungri og þorsta þarf að venja sig fyrst af öllu á reglubundna neyslu matar og halda sig við þá rútínu.
Það er líka nauðsynlegt að gefa sér góðan tíma til að borða. Sérfræðingar tala um að það taki um það bil tuttugu mínútur fyrir boðin um að maginn sé mettur að berast til heilans. Fyrir flesta nægir að borða þrjár máltíðir yfir daginn og fá sér snakk einu sinni eða tvisvar. Það kemur reglu á blóðsykurinn og þegar hann er í jafnvægi er eykst líkamleg og andleg orka.
Margt nútímafólk óttast hungur og hrætt við að fá ekki nóg af næringarefnum. Á flestum heimilum er að finna nokkrar dósir af vítamínum og sumir taka að auki alls konar fæðubótarefni. En það er ávallt best að fá næringuna beint úr matnum. Með því að borða trefjaríkan mat tryggir fólk betri meltingu, að seddutilfinningin náist fyrr og haldist lengur. Veldu þess vegna hafra, ávexti, grænt grænmeti, heilkorn og hýðishrísgrjón fremur en aðrar tegundir sem eru í boði. Hnetur og feitur fiskur eru sömuleiðis næringarríkar fæðutegundir sem gefa góða orku og fyllingu.
Hugmyndir að heilsusamlegu snakki yfir daginn:
Hálft avókadó tvisvar á dag ofan á ristaða súrdeigsbrauðsneið.
Paprikusneiðar eða kúrbítsbitar með hummus.
Heilhveitibrauðsneið með kotasælu og eplum.
Rúgbrauðsneið með krabbakjöti og einni teskeið af majónesi.
Saxað harðsoðið egg og bitar reyktum lax hrært saman og borðað úr bolla.
Hálft epli sneitt niður og borðað með hnetusmjöri.
Döðlur fylltar með pekan- eða valhnetum.
Grísk jógúrt með berjum.
Hvað segja matarlanganir þínar þér?
Ef þú finnur allt í einu yfirþyrmandi löngun í einhverja tiltekna matartegund gæti líkaminn verið að senda þér skilaboð. Skoðum nokkur tilvik:
Kaffi
Þig langar ofboðslega í kaffi einkum er vegna þess að þú ert orkulítil og þarft að koma kerfinu af stað. Mikill kaffiþorsti getur líka verð merki um járnskort. Járnið í blóðinu hjálpar til við að flytja súrefni til vöðvana og ef það er ekki nægilegt finnur fólk oft fyrir slappleika, syfju og einbeitingarskorti yfir daginn og leitast við að bæta sér hann upp með kaffi.
Súkkulaði
Hver þekkir ekki þessa sterku og ómótstæðilegu löngun til að skjótast út í sjoppu og kaupa eitt súkkulaðistykki. Það er vegna þess að þig vantar huggun. Í raun er það ekki undarlegt að við tengjum súkkulaði eða sælgæti við huggun, okkur var oft gefið eitthvað sætt til að hugga okkur þegar við vorum börn. Sumir fengu síróp eða hunang á snuðið og seinna var stungið upp í þá súkkulaðimola eða brjóstsykri til að stöðva grátinn. Stoppaðu áður en þú stekkur út í búð súkkulaðið og veltu fyrir þér hvort góður vinur getur ekki veitt þér meiri hlýju og uppbyggilegri hughreystingu.
Sterk krydd
Ef þú finnur fyrir löngun í sterkan mat og finnur jafnvel lyktina af karríréttum, engifer og chili í nefinu gæti verið að þú værir að veikjast. Hugsanlega þegar farinn að finna fyrir slappleika. Engifer, chili, túrmerik og fleiri kryddtegundir hafa góð áhrif á ónæmiskerfið og örva meltingarkerfi líkamans. Þegar fólk finnur fyrir slappleika leitar það gjarnan í sterkan mat.
Sætar kökur
Ef fólk þráir sætar kökur yfir daginn og lætur jafnvel eftir sér snúð eða kleinuhring með kaffinu gæti svefnleysi verið að hrjá það. Blóðsykurinn rýkur upp eftir að menn hafa borðað kökur og veitir skammvinnt orkuskot. Í stað þess að láta undan sætindalönguninni væri ráð að koma sér upp góðri svefnrútínu og gæta þess að borða alltaf morgunverð. Hann leggur undirstöðuna að góðum næringarvenjum yfir daginn.







