Tengdar greinar

Allt í einu fati

Þessi einfalda kjúklingauppskrift er ættuð frá Portúgal. Það besta við hana er að hér er allt eldað í einu fati og það sparar heilmikla vinnu. Það sem tilþarf er þetta:

2 hvítlauksrif marin

1 rauður chilli fræhreinsaður og skorinn smátt

2 msk rauðvíns edik

1 msk olífuolía

1 msk púðursykur

1 msk paprikuduft

1 msk oreganó smátt saxað

1 tsk sjávarsalt

2 kg. kjúklingur í bitum

1 kg kartöflur skornar í hæfilega bita

2 rauðlaukar skornir í báta

Setjið olíu, hvítlauk, chilli, rauðvínsedik, púðursykur, paprikuduft, oreganó og salt í skál og blandið vel saman. Setjið kjúklingabitana út í og passið að kryddblandan þeki þá vel. Lokið með plastfilmu og látið standa í ísskáp í að minnsta kosti tvo tíma.

Hitið ofninn í 200 gráður. Setjið kjúklingabitana í eldfast mót.  Skerið kartöflurnar í hæfilega bita og laukinn í báta og stingið inn á milli kjúklingabitanna.  Bakið í ofni í um klukkustund eða þangað til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Snúið bitunum nokkrum sinnum á meðan þeir eru að bakast. Verði ykkur að góðu.

Ritstjórn maí 17, 2019 07:50