Appelsínukjúklingur með ofnbökuðum kartöflum

Það er eiginlega ekki hægt að fá leið á kjúklingi. Það er hægt að elda hann á ótal vegu. Við fundum þessa uppskrift að appelsínukjúklingi á vef Ísfugls. Ef börn verða í matinn þá er kannski rétt að minnka aðeins chilliið sem er notað. Börn eru misjafnlega hrifin af sterku bragði.

1 heill kjúklingur

2 hvítlauksgeirar smátt saxaðir

1 appelsína skorin í bita

1 st rauður chilli smátt saxaður

½ dl olía

1 msk rósmarín þurrkað

1 tsk chilliduft

Salt og pipar

Þerrið kjúklinginn og hrærið saman hvítlauk, chilli og appelsínu og ½ msk rósmarín og troðið inn í kjúklinginn. Makið olíunni á kjúklinginn ásamt restinni af kryddblöndunni. Setjið í 175 gráðu heitan ofn og bakið í 70 til 80 mínútur eða þar til kjúklingurinn er gegneldaður. Blaðamanni finnst gott að sneiða appelsínur og bæta í fatið með kjúklingnum ásamt grein af fersku rósmarín en það er ekki í upprunarlegu uppskriftinni.

Sósa

1 dl vatn

1 dl appelsínusafi

2 msk appelsínumarmelaði

Soðið af kjúklingnum

Kjúklingakraftur

Sósujafnari

Sjóðið saman vatn, appelsínusafa, marmelaði og soðið af kjúklingnum. Bragðbætið með kraftinum og þykkið með sósujafnara.

Kartöflur í ofni

12 meðalstórar kartöflur

½ dl olía

2 saxaðir hvítlauksgeirar

1 msk þurrkuð steinselja

salt og pipar

Skerið kartöflurnar í bita og veltið upp úr olíunni, blandið hvítlauk og steinselju saman við. Kryddið með salti og pipar og bakið í ofni við 175 gráður í 40 mínútur.

Ritstjórn október 26, 2018 09:21