Umsagnarfrestur um frumvarp ellefu stjórnarandstöðuþingmanna um breytingar á lögum um Framkvæmdasjóð aldraðra er runnin út. Velferðarnefnd Alþingis hefur frumvarpið nú til umfjöllunar. Nefndin sendi út 82 umsagnarbeiðnir um frumvarpið, ein umsögn barst frá Landssambandi eldri borgara. Í henni segir: Tilgangur Framkvæmdasjóðs aldraðra er að stuðla að uppbyggingu hjúkrunarheimila í landinu. Tekjur sjóðsins myndast við álagningu nefskatts á alla Íslendinga 16 til 70 ára. LEB hefur margoft bent á að það gengur ekki að ríkisvaldið noti hluta af tekjum sjóðsins í rekstrarkostnað. Þörfin fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila og aukningu dagdvalarrýma er mikil og því getur það ekki gengið ár eftir ár að tekjur Framkvæmdasjóðs aldraðra séu skertar og notaðar í annað heldur en tilgangur Framkvæmdasjóðs aldraðra er.
Frumvarpið, verði það að lögum felur í sér breytingar á lögum um málefni aldraðra og á að tryggja að fé Framkvæmdasjóðs aldraðra sé varið til byggingar þjónustumiðstöðva og dagdvalar og byggingar stofnana fyrir aldraða og til að mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar og endurbætur á húsnæði sem notað er til þjónustu fyrir aldraða eins og kveðið er á um í lögunum. Þá fellur niður bráðabirgðaákvæði við lögin sem er heimild til þess að „verja fé úr sjóðnum til að standa straum af rekstrarkostnaði hjúkrunarrýma fyrir aldraða“, eins og þar segir.