Ráðamenn vilja ójöfnuð í landinu

Björgvin Guðmundsson

„Ríkisvaldið fer illa með sína eldri borgara,sem byggt hafa upp þetta þjóðfélag. Í stað þess, að þeir eigi áhyggjulaust ævikvöld kvíða margir þeirra morgundeginum vegna slæmra kjara.Er ekki kominn tími til þess að breyta þessu,“ segir Björgvin Guðmundsson í grein í Fréttablaðinu.

Björgvin segir: „Á næsta ári hækka lágmarkslaun á mánuði í 300 þúsund kr  fyrir skatt. Það er of lítið. Eldri borgarar og öryrkjar þurfa að hafa að lágmarki 400 þúsund fyrir skatt. Og að sjálfsögðu eiga lágmarkslaun að vera a.m.k . þessi fjárhæð.Telur einhver þetta of mikið til þess að lifa af? Nei, þetta er ekki of mikið. Þetta er aðeins brot af launum þingmanna, ráðherra og embættismanna.En ráðamenn í þessu landi vilja hafa mismunun í launum; þeir vilja hafa ójöfnuð í landinu. Ég er andvígur því.Ég vil stuðla að auknum jöfnuði  í þjóðfélaginu.Og ég tel, að launamismunur sé orðinn alltof mikill. Það þarf að draga úr honum á ný. Við höfum ekkert að gera við svona mikinn launamun; við höfum ekkert að gera við svona mikinn ójöfnuð,. 197 þúsund kr- 230 þúsund á mánuði eftir skatt eru þær uphæðir,sem ríkisvaldið skammtar eldri borgurum og öryrkjum,sem eingöngu hafa tekjur frá  TR.,eftir því hvort um gifta eða einhleypa er að ræða. Þetta eru skammarlega lágar upphæðir og furðulegt, að ríkisstjórn og Alþingi láti sér sæma að skammta þeim lægst launuðu meðal aldraðra og öryrkja svo smánarlegar upphæðir.

Þeir eldri borgarar, sem hafa lágan lífeyri úr lífeyrissjóði, eru lítið betur settir en þeir sem eingöng.u hafa tekjur frá almannatryggingum.Það er vegna skerðinganna. Kjör eldri borgara eru mjög misjöfn. Þeir eldri borgarar, sem eiga skuldlaust eða skuldlítið húsnæði, eru yfirleitt mun betur settir en hinir sem búa i leiguhúsnæði eða skuldugu eigin húsnæði.

Ríkisvaldið fer illa með sína eldri borgara,sem byggt hafa upp þetta þjóðfélag. Í stað þess, að þeir eigi áhyggjulaust ævikvöld kvíða margir þeirra morgundeginum vegna slæmra kjara.Er ekki kominn tími til þess að breyta þessu.Er ekki tímabært að gerbreyta kjörum eldri borgara; skapa þeim góð kjör á efri árum.Ég tel það.“ Greinina í heild er hægt að lesa hér.

 

Ritstjórn ágúst 31, 2017 10:15