Myndir verða kveikjur að rannsóknum

Ljósmyndir, ekki hvað síst gamlar, svarhvítar, dularfullar myndir geta vakið hugrenningatengsl og ímyndunarafl þeirra sem á þær horfa. Þórdís Gísladóttir gengur lengra en að leyfa huganum að reika. Hún fer af stað og leitar uppi fólkið á myndunum og gerir sögum þeirra skil í þáttunum Í upphafi var myndin, en þeir eru aðgengilegir í spilara RUV. Þórdís er frábær útvarpsmanneskja og einstaklega fundvís á skemmtilegar og merkilegar sögur. Hún kann líka mjög vel að byggja upp lifandi frásögn. Þetta eru ekki einu þættirnir í hennar umsjón sem gaman er að hlusta á í spilara RUV, nefna má Sjáandann á Vesturbrú og Bréfberann sem hvarf.

Í lýsingu á þáttunum á ruv.is segir: „Gömlu Grikkirnir kölluðu það ekfrasis þegar raunverulegu listaverki var lýst með orðum. Í Ilíonskviðu Hómers er skildi Akkilesar lýst í ljóði og rithöfundar hafa í þúsundir ára skrifað óteljandi texta sem lýsa eða túlka merkingu listaverka. Í þessari þáttaröð notar Þórdís Gísladóttir svipaða aðferð og segir frá fjórum myndum sem urðu til þess að hún heimsótti fólk og skjalasöfn og sökkti sér í heimildir um manneskjur sem hún hafði ýmist aldrei heyrt um eða vissi mjög lítil deili á. Myndirnar urðu kveikjan að því að hún raðaði saman fjölmörgum brotum úr fortíðinni og segir í þáttaröðinni Í upphafi var myndin sögur nokkurra Íslendinga sem fluttu til Danmerkur og Dana sem fluttu til Íslands. Allt lifði þetta fólk forvitnilegu lífi með gleði og sorgum, ævintýrum og leyndarmálum.“

https://www.ruv.is/utvarp/spila/i-upphafi-var-myndin/39648/bq3jg1

Auglýsing

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar