Sigurður Ágúst kjörinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík

Sigurður Ágúst Sigurðsson  fyrrverandi forstjóri DAS var í dag kjörinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík, á aðalfundi félagsins sem var haldinn í Gullhömrum.   Mikil spenna ríkti fyrir formannskjörið og var fundarsalurinn þéttskipaður.  356 greiddu atkvæði í  kjörinu og hlaut Sigurður Ágúst 215 atkvæði eða 60% greiddra atkvæða. Næst flest atkvæði hlaut Sigurbjörg Gísladóttir, sem var varaformaður fráfarandi stjórnar eða 130 atkvæði.  Ingibjörg Sverrisdóttir fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

Fjórir voru í framboði til formanns, auk Sigurðar Ágústs  voru það Bergþór Kjærnested, Sigurbjörg Gísladóttir og Sverrir Kaaber. Þetta fólk hefur allt gegnt margskonar störfum og trúnaðarstöðum um ævina.  Á fundinum voru einnig kjörnir þrír aðalmenn í stjórn FEB og jafn margir varamenn. Úrslit stjórnarkjörsins verða birt á heimasíðu FEB þegar þau liggja fyrir.

Aðalfundur FEB 2024

Það var þétt setinn bekkurinn á aðalfundi FEB

 

 

Ritstjórn febrúar 21, 2024 17:18