Fataviðgerðir kenndar á Borgarbókasafninu

Annað kvöld miðvikudaginn 25. mars  fer fram spennandi smiðja á Borgarbókasafninu þar sem kenndar verða einfaldar fataviðgerðir og leiðir til að lengja líftíma fatnaðar.

Miðvikudagskvöldið 25. mars munu Ragna S. Bjarnadóttir, lektor í fatahönnun við Listaháskóla Íslands og Katrín Káradóttir, prófessor í fatahönnun við LHÍ, halda fataviðgerðarsmiðju á Borgarbókasafninu Gerðubergi undir yfirskriftinni Skapandi fataviðgerðir.

Í smiðjunni munu Ragna og Katrín sýna dæmi um fataviðgerðir og leiðbeina þátttakendum við lagfæringar á fötum. Áhugasöm eru hvött til að koma með flíkur sem annað hvort þarfnast lagfæringa eða breytinga, sem og eigin verkfæri og efnivið. Einnig verður á staðnum eitthvað af verkfærum, saumavélum, þráðum, garni og textíl, auk sýnidæma og fræðsluefnis til að kveikja hugmyndir.

Smiðjan er hluti af spennandi viðburðaröð á Borgarbókasafninu Gerðubergi þar sem fatnaður, textíll, ábyrgari neysla og hringrásarhagkerfið eru meðal annars í brennidepli. Í dag er það nefnilega svo að til eru næg föt í heiminum fyrir næstu sjö kynslóðir en samt er stöðugt framleitt meira. Ein leið til að sporna við ofneyslu er að tileinka sér aðferðir fyrri kynslóða sem nýttu efni vel og gerðu við í stað þess að henda.

Viðburðaröðin er í umsjón Rögnu og haldin í samstarfi við Listaháskóla Íslands. Hún fer fram undir merkjum make-a-thek, alþjóðlegs verkefnis sem Borgarbókasafnið Gerðubergi er þátttakandi í til næstu þriggja ára. Markmið verkefnisins er að búa til vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumers) til að læra nýjar aðferðir í handavinnu, glæða gamlar flíkur nýju lífi og deila þekkingu. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.

Smiðjan verður haldin á miðvikudag milli kl. 19:30 – 21:00

Ókeypis er inn og eru öll hjartanlega velkomin.

Nánar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is