Kynning

„Fólk er svo þakklátt fyrir að fá góða hvíld“

Bláklukka, baldursbrá, gleymmérei og blóðberg vekja ljúfar minningar um sumar og sæla daga hjá mörgum. Hjá Lín Design eru þær hins vegar innblástur að hágæða vöru sem í senn fegrar svefnherbergið og ýtir undir betri hvíld. Ágústa Gísladóttir stendur þar vaktina flesta daga en hún hefur ástríðu fyrir að veita góða þjónustu og efla umhverfisvitund neytenda með því að bjóða þeim hágæðavöru framleidda á sjálfbæran hátt. Hún er eigandi Lín Design, en fyrirtækið er komið á þrítugsaldur og flestir Íslendingar þekkja orðið vöruna.

Baldursbrá, jafnfalleg og augu Baldurs en hjá honum var allt tandurhreint og óspillt.

Lín Design var stofnað í þeim tilgangi að skapa íslenska vörulínu þar sem náttúra landsins og menningararfleifð yrðu uppspretta að mynstrum og útliti. Á Norðurlöndum er löng hefð fyrir hönnunarvörum sem nýta sér einmitt sérstöðu og hugmyndaauðgi hönnuða á hverjum stað. Lín Design varð fyrst til að gera hið sama í mjúkum heimilisvörum. En hvenær tókst Ágústa við keflinu?

„Ég keypti Lín Design ásamt systur minni árið 2017 en fyrirtækið fagna tuttugu og einu ári á íslenska markaðnum í ár,“ segir hún. „Fyrirtækið var stofnað með það að markmiði að bjóða vörur úr hágæða Pima-bómull en það er mjög sjaldgæft að fá hana hér. Plantan er grófgerðari í hefðbundinni bómull en Pima-bómull. Hún er sambærileg við egypska bómull sem margir þekkja en Pima gefur betri endingu, mýkri áferð og meiri gæði.“

Bambusinn rétt eins og silki

Ágústa segir þau einnig leggja áherslu á að vera með algjörlega náttúruleg efni og tryggja að þau séu ekki blönduð þalötum eða öðrum gerviefnum sem notuð eru til að mýkja efni. Sú er raunin með nýjustu línuna í rúmfötum sem er úr bambus.

„Mýktin er á við fínasta silki,“ segir hún. „Silki er fínasta efni sem við vinnum með og verðið eftir því en bambusin gefur færi á að veita það sama á mun hagstæðara verði. Bambusinn hefur þann kost að vera hitatemprandi og á honum er þægilegt að snúa sér. Ég hef heyrt frá fólki sem notar snúingslök að það sé ekki síðra að sofa á bambus-laki. Hér komu hjón fyrir jólin til að kaupa sér annað bambus-lak og maðurinn sagði að hann hefði fyrst eftir að þau keyptu lakið fengið almennilega hvíld og þetta var maður kominn á eftirlaunaaldur. Það er vitundarvakning í gangi varðandi mikilvægi svefngæða og við erum með dúnvörur og það er svo gaman hve oft fólk kemur hér við og segir okkur að það hafi leitað lengi að rétta koddanum og hefur loksins fundið hann hjá okkur. Fólk er svo þakklátt fyrir að fá góða hvíld. Og það gleður okkur að fá þessa endurgjöf. Það skiptir svo miklu máli að vakna úthvíldur.“

Íslensk náttúra og arfleifð er innblásturinn að vörum Lín Desgn.

Bambusinn hefur svo þann kost að auki að vera mjög hraðvaxta svo hann er ákaflega umhverfisvænt efni. Íslensk náttúra og arfleifð er ykkur greinilega hugleikin líka, er ekki svo?

„Jú, alltaf þegar við vinnum með mynstur er sótt í þá uppsprettu. Við leggjum áherslu á að viðskiptavinurinn fái að upplifa það sem er að baki hverju og einu mynstri. Upplýsingar um þau er að finna á heimasíðunni og þegar fólk kemur í verslunina erum við tilbúin að segja frá uppruna vörunnar, gæðum, eiginleikum og sögunni að baki. Hvað varðar rúmfötin okkar er hugsunin sú að við viljum að rúmið sé fallegt og fólki líði vel meðan það sefur. Hvert einasta rúmfatasett kemur svæfilveri sem nota má utan um púða og hafa á rúmteppinu yfir daginn.

Við erum ekki með plast, vöggusettin og barnarúmfötin koma í dúkkurúmfötum því bæði viljum við að umbúðir séu endurnýttar og svo trúum við því að til að auka öryggi og vellíðan barnsins þegar það fer að sofa sé það til þess fallið að ýta undir sjálfstraust að dúkkan eða bangsinn sofi með samskonar rúmföt. Svo er líka gott fyrir börn að læra snemma að hugsa vel um sjálf sig. Njóta hvíldar undir efnum sem anda, eru engum skaðleg og endast. Ef það gert er ég þess fullviss að börnin vaxi upp sterkari einstaklingar. Umhverfisverndin er okkur alltaf ofarlega í huga.“

Buxurnar frá Ninepine eru svo þægilegar að margar konur eru þegar búnar að kaupa tvennar.

Fatnaður við öll tækifæri

Hjá Lín Design er ekki eingöngu að finna rúmföt, handklæði, rúmteppi, dúka, servíettur, viskastykki og fleiri heimilisvörur, hér eru líka barnaföt, dásamleg mjúk kósíföt fyrir allt heimilisfólk og nýlega bættist við kvenfatamerkið Ninepine. Hvenær fóru fötin að bætast við?

„Það var aðeins byrjað þegar ég tók við,“ segir Ágústa. „Við héldum því áfram en fundum að ungt fólk í dag vill meiri fjölbreytileika. Við tókum þess vegna inn danska barnafatamerkið Fixoni fyrir tveimur árum. Fjórum sinnum á ári koma nýjar línur frá þeim, nýir litir og ný snið. Þessi vara er OEKO-TEX® vottuð, eins og öll okkar framleiðsla. Hluti af okkar vörum er GOTS-vottuð en við leggjum áherslu á að bjóða aðeins vörur sem hafa vottun um gæði og ábyrga framleiðslu.

Ninepine kom inn í maí. Við höfðum fengið margar fyrirspurnir frá viðskiptavinum um hvort við ætluðum ekki að bjóða meira en kósíföt. Fólk þekkti sniðin, gæðin og þægindin en langaði að geta notað fötin í vinnuna, á ferðalögum og hversdags líka. Við sáum að til þess að geta þjónað markaðnum yrðum við að finna eitthvað sem uppfyllti allar þessar kröfur og fundum Ninepine. Það er skandinavískt merki og fáanlegt víða um Evrópu. Þeir leggja áherslu á að bjóða fáar vörutýpur en klassískar og þægilegar flíkur.

Buxurnar þrengja til dæmis hvergi að en eru með þannig sniði að hægt er að vera í þeim í vinnunni, skella svo blazer-jakkanum yfir og fara í kokteilboð. Þetta eru einföld snið en klæðileg og falleg svo fatnaðurinn gengur við allt. Við bjóðum þær í mörgum stærðum og fjórum síddum svo allir ættu að geta fundið buxur við hæfi. Mér fannst skipta máli að bolirnir eru úr Pima-bómull og við vorum rosalega ánægðar að finna þetta merki. Auðvitað þurfti aðeins að selja þeim hugmyndina að koma inn á okkar litla markað hér á Íslandi en þeim fannst það ekki rosalega spennandi í byrjun en það hafðist.“

Hjá Lín Design fæst eitthvað fyrir alla.

Alltaf vakandi fyrir óskum viðskiptavinarins

Til að byrja með er Ninepine eingöngu fáanlegt í versluninni en ekki í netversluninni. Það hefur ekki dregið úr áhuganum en Ágústa segir að nokkrar konur séu þegar búnar að koma aftur til að bæta við sig fleiri litum eftir að hafa prófað buxurnar. Það er að heyra að einhver ástríða reki þig áfram hefur þú gaman af þessu?

„Já, svo sannarlega,“ segir hún og hlær við. „Þetta verður skemmtilegt vegna þess að við fáum svo mikið hrós frá okkar viðskiptavinum. Við viljum gera vel og fólk er ánægt með okkar vörur. Við erum búin að vera á markaðnum í þetta langan tíma og höfum skapað okkur traust, viðskiptavinir okkar þekkja gæðin. Verslunin okkar er rúmgóð og þægileg og það er kostur sem fáir vita af að hér á Smáratorgi er mjög stór bílakjallari og þar eru alltaf laus stæði. Þaðan er hægt að taka lyftuna upp í verslanirnar. Í jólaösinni er það sannarlega kostur að þurfa ekki að leita að stæðum og ganga langan veg í misjöfnu veðri. Við bjóðum líka orðið vörur fyrir öll rými heimilisins og ég veit að hingað koma margir fyrir jólin og kaupa jólagjafir handa öllum í fjölskyldunni. Við seljum að auki gjafavörur, barnavörur og fatnað. Svo erum við með fjölnota gjafapoka þannig að hér þarf engu að pakka og sá sem fær gjöfina notar svo pokann áfam. Við viljum ekki sóun og pappírseyðslu. Þetta er endurnýtingarhagkerfið “

Hjá Lín Design er að fina frábæran efnivið í fullkominn mjúkan pakka.

Og þetta eru sannarlega góða gjafir, mjúkir og hlýjir pakkar. En ertu eitthvað farin að horfa til eftirlaunaáranna eða jafnvel skipuleggja þau? „Nei, ég get ekki sagt það. Ég á svolítið í það enn, er fimmtíu átta ára og heilsan góð. En þótt ég vinni mikið passa ég alltaf upp á sjálfa mig. Ég geng alltaf í vinnuna og fer í göngutúr á kvöldin með bóndanum. Okkur finnst líka gaman að hjóla og hjólum mikið á sumrin. Ég gef mér alltaf tíma til að hreyfa mig eitthvað. Við höfum gaman af að ferðast en ég þarf að taka vinnuna með mér þegar ég fer í frí en maður skipuleggur þá bara með það í huga.

Við erum fjölskylda sem hefur alltaf verið mjög tengd og nú eru tvö af börnunum okkar á leið í nám erlendis, sonur okkar til Harvard í Bandaríkjunum og dóttir okkar til Danmerkur. Það verður auðvitað nýr kafli hjá okkur og við sjáum fyrir okkur að ferðast meira til að heimsækja þau. En þegar maður er í svona rekstri þarf maður að vera vakandi fyrir öllu og geta aðlagað sig hratt. Markaðurinn hefur breyst gríðarlega frá því ég byrjaði og breytingarnar eru stöðugar. Maður þarf alltaf að hlusta á viðskiptavininn, skynja óskir hans og þróast með honum.“

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.