Ertu tilbúin/n að komast að hvað uppáhaldsbókin þín gerir fyrir heilann?

Allir vita að bóklestur er góð afþreying og hann skilar bæði þekkingu, samlíðan og víðari sjóndeildarhring. Færri vita að lestur hefur áhrif á taugstöðvar í heilanum og hvers konar sögur þér finnst skemmtilegast að lesa getur breytt heilastarfsseminni. Já, hvorki meira né minna. Ert þú tilbúin/n að komast að hvað uppáhaldsbókin þín gerir fyrir heilann?

Auglýsing

Nýjar rannsóknir sýna nefnilega fram á að bókmenntagreinar hafa mismunandi áhrif og á mismunandi stöðvar. Glæpasagnaaðdáendur, fantastíufíklar, rómanaunnendur, og hryllingssögugóðvinir eru nefnilega að næra mismunandi viðbrögð og halda lifandi ólíkum stöðvum. Skoðum hvað hver bókmenntagrein gerir fyrir heilann.

Glæpa- og spennusögur

Glæpa- og spennusögur njóta vinsælda vegna þess að þær krefjast athygli. Lesandinn þarf að vera vakandi fyrir vísbendingum og næmur á alla snúninga í söguþræðinum. Hann mótar eigin kenningar og mótar rök til að styðja þær. Vísindamenn fylgdust með virkni í heilanum hjá lesendum slíkra sagna og komust að því að allar heilastöðvar sem hafa með rökhugsun og ályktunarhæfni að gera lýstust upp.

Rómanar eða rómantískar ástarsögur

Þessar sögur krefjast þess af lesandanum að hann lesi í viðbrögð persóna hverri við annarri og setji sig inn í líðan þeirra. Þeir þurfa líka að túlka tilfinningar, velta fyrir sér hvað laðar eina persónu að annarri og hvað ræður því að ástarsambönd breytast. Rannsókn á aðdáendum slíkra sagna leiddi í ljós að þeir hafa almennt betri tilfinningagreind en aðrir, eru góðir í að lesa fólk og þegar heilastarfssemin var mæld sást gríðarleg virkni í þeim stöðvum sem hafa með tilfinningar að gera meðan þeir voru að lesa uppáhaldsbækurnar sínar. Það kom hins vegar á óvart að stöðvar sem hafa með framkvæmd og endurgjöf að gera urðu einnig mjög virkar. Vísindamennirnir túlkuð það á þann veg að þeir sem lesa ástarsögur eru líklegri til að taka fyrsta skrefið að nýjum kynnum og eru tilbúnir að taka vel á móti því sem hinn aðilinn vill gefa til baka.

Það skiptir máli að vera virkur og vinna að áhugaverðum verkefnumFantasíubækur

Sumir telja slíkar sögur fyrst og fremst barnalegar. En þær byggja upp ímyndunaraflið og hæfnina til að stíga út fyrir boxið. Lesendur þeirra þurfa að skapa heila veröld í huganum, oft mjög framandi heim og til að geta fylgt þeim ótal hugmyndum og reglum sem gilda í þessum hliðarheimum. Þegar viðbrögð heilans við slíkum sögum voru kannaðar kom í ljós að mikil virkni birtist í eim hlutum heilans sem hafa með úrvinnslu nýrra upplýsinga að gera, athygli og tilfinningaviðbrögð. Lesendur verða að vera tilbúnir til að trúa á hið ómögulega, í það minnsta meðan þeir njóta bókarinnar og það getur verið jafngóð þjálfun fyrir heilann og að taka þátt í flóknum íþróttum eins og skák. Það skiptir ekki máli hvort fantasían er vísindaskáldsaga eða ævintýri. Þessar bækur byggja á hvað ef allt aðrar reglur og lögmál ríktu hvað þá?

Hryllingssögur

Hryllingssögur leyfa lesandanum að finna fyrir ótta og spennu úr öruggri fjarlægð.  Þeir geta notað þess finna adrenalínið flæða um æðarnar og spennuklump setjast að í maganum. Stundum endast áhrif löngu eftir að bókin hefur verið lesin. Þetta krefst samtals milli margvíslegra taugabrauta í heilanum. Mandlan hjálpar fólki að greina og þekkja mögulega ógn í sögunni meðan framheilinn styður við úrvinnslu upplýsinganna og að finna réttu viðbrögðin. Það að lesa slíkar sögur reglulega getur dregið úr óöryggi hjá fólki því það lærir að þekkja óttaviðbrögð sín og hemja þau. Þess vegna þurfa menn venjulega alltaf meiri og meiri ógn til að finna til ótta við lestur slíkra sagna.

Sögulegar skáldsögur

Þessi tegund bókmennta opnar lesendum leið til að ferðast með tímavél aftur til fortíðar. Þeir læra heilmikið um líf fólks á fyrri tímum og sitja því eftir með aukinn skilning á fortíðinni. Sumum finnst jafnvel þeir hafa upplifað það sama og söguhetjurnar. Sú vissa að sagan á sér stoð í tíðaranda sem var hjálpar enn frekar að gera söguna raunverulega í hugum þeirra. Stöðvar heilans sem svöruðu slíkum bókum hafa að gera með hæfni til að setja sig í spor annarra, sökkva sér ofan í hluti og opna hugann fyrir nýjum sjónarhornum.

Ævisögur og minningar

Þar opnast fólki leið inn í huga annarrar manneskju, leið til aukins skilnings og umburðarlyndis í flestum tilfellum. Lesandinn spyr sig gjarnan hefði ég gert það sama í svipuðum sporum? eða hef ég upplifað eitthvað þessu líkt? Þegar kannað var hvernig heilinn bregst við minningum annarra og lífshlaupi raunverulegra manneskja kom í ljós að allar stöðvar sem hafa með tilfinningalega og vitsmunalega úrvinnslu að gera unnu í akkorði meðan á lestrinum stóð.

Gamansögur

Húmor er dásamlegt tæki og léttir á allri spennu. Hann krefst samt ákveðinnar hugsunar, við þurfum nefnilega að skilja brandarann. Þeir sem hafa gaman af að lesa brandara eða skáldssögur í léttum dúr verða smátt og smátt meistarar í að lesa á milli línanna, búast við hinu óvænta og leysa úr flækjum. Það er rákastúkan, hluti af umbunarparti heilans, fer á flug þegar lesnar eru fyndnar skáldssögur eða gamanbókmenntir.

Hvað er þá besta bókmenntagreinin upp á að þjálfa heilann?

Það er enginn einn sigurvegari hvað það varðar því allar gefa þær af sér og þjálfa mismunandi svæði. Ætli það sé ekki óhætt að mæla með að lesa einfaldlega allar tegundir bókmennta og mikið af þeim. Heilinn er margslunginn og þarf þjálfun og lestur gefur góða æfingu fyrir hann hvað svo sem menn velja sér að lesa.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.