Draumar og skipbrot þeirra

Hvar liggur ábyrgð hvers einstaklings á hamingju sjálfs sín og annarra þegar kemur að fjölskylduböndum? Í gegnum bókmenntasöguna hafa margir höfundar glímt við þessa spurningu og ýmist komist að þeirri niðurstöðu að sjálfsfórn sé æskilegust eða að fyrst og fremst beri hverjum og einum að lifa sínu lífi til fulls. Þessi spurning er undir í Svikasögum í Borgarleikhúsinu og ekki gefið einfalt svar.

Auglýsing

Áhorfendur hverfa aftur til ársins 1984. Allir reykja inni jafnt sem úti, bleikir og bláir Henson-gallar eru inni og allir uppteknir af því að láta drauma sína rætast. Tryggvi er lærður óperusöngvari en vinnur í banka til að sjá fjölskyldunni farborða. Sæunn kona hans er komin í nám en hún hefur lengi þráð að menntast og loks gefst það tækifæri. Hún leggur hart að sér og stendur sig óskaplega vel. En það brakar og brestur í hjónabandinu.

Dóttir þeirra hjóna, Nanna, er að breytast í ungling, farin að stela úr búðum og fikta við að reykja. Hún er pabbastelpa en elskar líka mömmu sína og er hreykin af henni. Veröld hennar snýst um þau, Óla stóra bróður og Gerði vinkonu sína. Og Nanna á líka sína drauma um að standa á sviði og syngja, hún ætlar að verða óperusöngkona og syngja með pabba sínum. Þegar pabbi hennar hverfur skyndilega úr lífi þeirra snýst veröld Nönnu á hvolf. Eru sögurnar um pabba hennar sannar? Er hann virkilega svikari? Er það satt sem hann segir þegar hann fullyrðir að hann elski dóttur sína?

Tryggð, kærleikur og samstaða  

Nanna er lent á milli tveggja elda. Öðru megin er móðir hennar brotin, aum og reið. Skilnaðurinn virðist hafa komið henni í opna skjöldu og hinum megin er faðirinn að því er virðist önnum kafinn við að lifa lífi sínu á sem innihaldsríkastan hátt en án konu sinnar og barna. Í huga barnsins takast á ástin á föðurnum og tryggðin við móðurina. Þetta tvennt virðist ekki geta farið saman og hvaða valkostir eru þá opnir?

Svikasögur er þriðja verk Maríu Reyndal um fjölskyldur í krísu. Áður hefur hún sett á svið í Borgarleikhúsinu, Er ég mamma mín? og Með Guð í vasanum. Í báðum fyrri verkum var velt upp spurningum skyldur, tryggð og trúnað innan fjölskyldna. Hversu langt nær ábyrgð okkar á öðrum? Fjölskylda leggur okkur fjölmargar skyldur á herðar og valið stendur stundum um að rækta þær eða leggja alla áherslu á að byggja upp eigin lífshamingju. Stundum getur þetta tvennt nefnilega ekki farið saman. Tolstoj færði okkur Önnu Kareninu og Ibsen Nóru í Dúkkuheimilinu. Þar var í forgrunni það viðhorf að sjálfsagt væri að konur fórnuðu eigin þroska, hamingju og lífi fyrir fjölskyldu sína sem Tolstoj taldi sjálfsagt en Ibsen ekki. Nóra gengur út, ákveður að vera ekki lengur skrautmunur á heimili manns síns og kýs að þroska eigin persónuleika og sjálfstæði. Í Svikasögum er það heimilisfaðirinn sem fer og óhjákvæmilega þarf að spyrja sig er það rétt val.

Eftir situr móðirin, þarf að gefa upp á bátinn drauminn um menntun og í biturleika sínum krefst skilyrðislausrar tryggðar af börnum sínum. Og þá kvikna nýjar spurningar. Ef einstaklingurinn ber fyrst og fremst ábyrgð á eigin þroska og leit eftir persónulegum þroska og uppfyllingu drauma hvar standa þá börnin? Engin einhlít svör eru gefin í þessu verki en áhorfandinn skynjar skerandi togstreituna og sársaukann.

Þetta er áhrifamikil og mögnuð sýning. Allur leikhópurinn er hreint út sagt frábær. Þær Rebecca Lív Biraghi og Viktoria Dalitso eru stórkostlegar í hlutverki Nönnu yngri og Gerðar vinkonu hennar. Mikael Kaaber vekur samúð og skilning í hlutverki Óla, unglingsins sem þarf að fullorðnast í einu vetfangi og taka yfir ábyrgð heimilisföðursins. Birna Pétursdóttir er í senn brothætt og sterk í hlutverki Sæunnar og túlkar sérstaklega vel úrræðaleysi konu sem átti ekki einu sinni bankareikning í sínu nafni áður en maður hennar fór. Berglind Alda Ástþórsdóttir hreyfir síðan við öllum í hlutverki Nönnu fullorðinnar. Hákon Jóhannesson leikur Tryggva og nær að sýna bæði eigingirni hans sem og ástúð hans í garð barna sinna. Vilhelm Neto og Katla Margrét Þorgeirsdóttir eru svo einstaklega fyndin í hlutverkum frændfólksins sem nærist á dramanu og nýtur þess innst inni að gera illt verra.

María leikstýrir sýningunni sjálf og nær að gera það á svo blæbrigðaríkan og einstakan hátt að það ljær efninu einstaka dýpt. Einnig hljóðmynd Þorbjörns Steingrímssonar sem undirstrikar tilfinningasveiflur Nönnu á athyglisverðan hátt.  Eva Signý Berger á svo hrós skilið fyrir frábæra leikmynd og búninga. Henni tekst að sýna hve þunn hulan milli minninga og raunveruleika er. Einstaklingar sem hafa orðið fyrir áföllum þurfa stöðugt að halda tilfinningunum bak við tjöldin í veikri von um að fólk sjái ekki að þau eru brotin. En áföllin eru alltaf innan seilingar, bak við gagnsæ tjöld og teygja sig inn í alla kima lífsins eins og renningarnir sem umkringja og vefjast um leikmyndina.

Tímaskeiðið lifnar líka svo reyndar líka einstaklega vel við og allt er þar sérlega vel unnið. Allt frá Cheerios-pökkum, sígarettuumbúðum yfir í Henson-galla. Lagskipting leikmyndarinnar undirstrikar svo einstaklega vel þessa þörf einstaklinganna fyrir sitt rými, sitt pláss í veröldinni en jafnframt óhjákvæmilega tengingu okkar hvert við annað og það hvernig gerðir okkar hafa ævinlega afleiðingar fyrir bæði okkur sjálf og þá sem eru háðir okkur.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.