Draumar og draumráðingar á bókasafninu Spönginni

Mörg álíta að ef fólk gefur draumum sínum gaum, þá geti það eflt sköpunargáfu sína, aukið innsæi sitt og komið út sem sterkari og heilli manneskjur.“

Auglýsing

Á fyrsta fræðakaffi haustsins mun séra Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogssókn, fjalla um drauma og draumaráðningar. Viðburðurinn fer fram á Borgarbókasafninu Spönginni, mánudaginn 21. september kl. 16:30 – 17:30.

Arna Ýrr hefur notað draumavinnu í sálgæslu í mörg ár en auk þess hefur hún haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða um drauma og draumavinnu. Draumar eru sammannlegt fyrirbæri og hafa heillað á öllum tímum. Að sögn Örnu er það reynsla margra að draumatúlkun geti hjálpað fólki við að takast á við ýmis viðfangsefni í sínu lífi, hvort heldur sem er tengd tilfinningum, ýmiskonar aðstæðum og jafnvel flóknum úrlausnarefnum.

Að sögn Örnu álíta mörg að ef fólk gefur draumum sínum gaum, þá geti það eflt sköpunargáfu sína, aukið innsæi sitt og komið út sem sterkari og heilli manneskjur. Þar að auki eru draumar og draumaráðningar vinsælt umræðuefni á meðal fólks og gaman að bæta í sarpinn ýmsum fróðleik sem skemmtilegt er að hafa á takteinum.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!