Friðurinn hélt í 40 ár – Bjarni Finnsson og blómið

Bjarni Finnsson.

Bjarni Finnsson, stofnandi Blómavals, rak fyrirtækið á tíma leiðtogafundarins 1986 ásamt bróður sínum Kolbeini og eiginkonum þeirra beggja, Hildi Baldursdóttur og Bryndísi Jóhannesdóttur. Blómavali var fengið það hlutverk að sjá um blóm og skreytingar í Höfða á fundinum sjálfum og fékk Bjarni það hlutverk að vera með skipuleggjendum í húsinu í aðdraganda fundarins. Hann segir það hafa verið mikið ævintýri enda var til fundarins stofnað með mjög skömmum fyrirvara eða einungis 10 dögum. Þeir sem þekkja Bjarna segja að atið í kringum þennan viðburð hafi átt vel við hann enda forkur til allrar vinnu. „Fulltrúar frá hvoru stórveldinu fyrir sig voru alltaf viðstaddir þegar taka átti ákvarðanir um smæstu atriði,“ segir Bjarni og brosir. „Þetta voru atriði eins og að færa stól eða hvernig tebolla skyldi bjóða þjóðarleiðtogunum að drekka úr. Tebollarnir urðu að stóru máli því annað stórveldið vildi stóra bolla en hitt litla. Við komum svo með tillögur að blómaskreytingum, þær voru lagðar fyrir næstráðendur sem þurftu að fá næst lag fyrir ofan til að samþykkja og gerðar voru breytingar. Útkoman var svo lögð fyrir hæstráðendur sem komu með tillögur um breytingar ef þurfa þótti. Okkur þótti þetta umstang í rauninni eins og í bíómynd því vorum vön að ganga í verkin og klára þau. Þarna var verið að bíða og bíða og bíða og stundum var síðan upphafleg hugmynd bara notuð.“ Bjarni segir að það hafi óneitanlega verið áhugavert að kynnast þessum heimi.

Auglýsing

Þegar reikningarnir voru svo sendir að loknum fundinum segir Bjarni það hafa verið verulega áhugavert að eiga við hvort stórveldið fyrir sig. „Rússarnir komu með pening í umslagi og gerðu upp sína skuld áður en þeir yfirgáfu landið. Bandaríkjamennirnir fengu sams konar reikning en þurftu að senda reikninginn á milli landa áður en hægt var að greiða hann, og það tók sinn tíma. En allt fékkst greitt að lokum.“

Blómvöndur til Gorbachev

Bjarna þótti sérstaklega skemmtilegt þegar pöntun kom frá viðskiptavini Blómavals um blómvönd sem hann vildi senda Gorbachev.  „Við gerðum auðvitað eins og viðskiptavinurinn vildi og ég fór persónulega með

Rússneska skipið sem Gorbachev gisti í og stóð við Ægisgarð.

vöndinn niður í Höfða og afhenti hann vopnuðum dyraverði og sagði honum að þetta væri vöndur til Gorbachev, hvort hann gæti ekki komið honum til þjóðarleiðtogans. Sá vopnaði tók við vendinum en ég vissi svo ekki hvort ósk viðskiptavinar okkar rættist en við gerðum okkar besta,“ segir Bjarni og kímir. ,,Starfsmenn sendiráðs Rússa hér reiknuðu greinilega með að Gorbachev myndi gista í sendiráðinu í Reyikjavík en þegar til kom var brunað með leiðtogann niður í skip þeirra sem lá við Ægisgarð. Hann kom því aldrei í sendiráðið en þar var búið að hafa mikið fyrir að skreyta með blómum og gera huggulegt fyrir hann.

Þetta reddast

Ýmsar ástæður voru líklega fyrir því að Ísland varð fyrir valinu sem fundarstaður fyrir leiðtogafundinn en óljóst er hvort þeir, sem sáu um valið, hafi vitað um þá lífsskoðun Íslendinga að hlutirnir hefðu tilhneigingu til að reddast. Þess vegna væri óhætt að skipuleggja svo mikilvægan fund hér norður frá á eyju sem var langt frá hættum sem að leiðtogunum gætu stafað því hlutunum yrði líklegast reddað. En þetta eru nú bara vangaveltur en viti menn, þetta reddaðist. ,,Þar sem fyrirvarinn var svo stuttur voru vanir menn fengnir á hvern stað,“ segir Bjarni. ,,Við höfum séð um skreytingar í Höfða þegar haldnir voru viðburðir á vegum borgarinnar í nokkurn tíma og þess vegna var okkur líklega fengið þetta hlutverk. Við vorum stærstir á þessum tíma og gátum útvegað allt sem til þurfti með litlum fyrirvara. Fljótlega eftir að þessi vinna fór öll í gang höfðu bæði sendiráðin samband við okkur og lögðu fram sínar óskir og við reyndum að verða við þeim. Gorbachev hélt svo blaðamannafund í Háskólabíói að leiðtogafundinum loknum og þar var mikið við haft,“ segir Bjarni sem segir að Blómaval hafi sent tvo stóra sendibíla með skreytingum og plöntum til að skreyta salinn og stórt sviðið í Háskólabíó. „Þegar sendingin kom í Háskólabíó stóðu tveir menn  með með prik sem þeir potuðu ofan í mold plantnanna til að athuga hvort þar leyndust nokkuð vopn eða sprengjur. Þetta var mjög framandi fyrir okkur,“ segir Bjarni og brosir.

Blómið á milli leiðtoganna á myndatökunni

Bjarni segir að þegar búið var að ræða vel og lengi um hvað ætti að vera á borðinu á milli leiðtoganna í myndatökunni í Höfða hafi hann allt í einu munað eftir blómi sem var til í Blómavali og var af tegundinni Gardenía. „Þessi planta blómstrar hvítu, fallegu blómi og var einmitt í blóma á þessum tíma,“ segir Bjarni sem lét senda plöntuna í flýti niður í Höfða og úr varð að allir sættust á þessa niðurstöðu þegar búið var að stilla henni upp á borðinu á milli stólanna. „Ég hugsaði allan tímann að hvíta blómið væri fullkomið „friðarblóm“. Við þetta voru ekki gerðar neinar athugasemdir og hugmynd mín var samþykkt. Friðarblómið var samt aldrei rætt sérstaklega en mér þótti gott að vita að hafa átt þátt í að friður í heiminum kæmist á,“ segir Bjarni og hlær. „Sá friður entist í 40 ár og nú vitum við ekki hvað gerist næst. Það lítur ekki út fyrir að Putin og Trump séu sama sinnis og Reagan og Gorbachef svo annar leiðtogafundur er líklega ekki á dagskrá. Enda hefur heimsmyndin breyst svo mikið á þessum 40 árum að ekki er víst að það væri Íslandi í hag að halda aftur slíkan fund,“ bætir Bjarni við.

Allir sáttir eða hvað?

Fundinum var slitið án niðurstöðu en talið er að hann hafi engu að síður gegnt mikilvægu hlutverki í þróun afvopnunarmála í heiminum. Tilgangur fundarins var að undirbúa fund leiðtoganna sem stóð til að halda í Washington ári síðar. Í undirbúningi var að ræða um takmörkun á vígbúnaði stórveldanna því mönnum var í fersku minni hræðilegar afleiðingar seinni heimsstyrjaldarinnar og þá voru vopn orðin enn fullkomnari, svo ekki sé talað um vopnabúr heimsins í dag.

Talið var að fundurinn í Höfða hafi verið mikilvægur þáttur í undirritun INF sáttmálans í desember 1987 sem haldinn var í Washington ári síðar. INF sáttmálinn var ,,Sáttmáli hinna sameinuðu þjóða“ og hljóðar upphaf texta hans svona: ,,Vér, hinar sameinuðu þjóðir erum staðráðnar í að bjarga komandi kynslóðum undan hörmungum ófriðar, sem tvisvar á ævi vorri hefur leitt ósegjanlega þjáningar yfir mannkynið.“ Þátttakendur fóru sáttir frá borði að loknum fundinum 1987 og nú eru líklega flestir í heiminum  sammála um að tími sé kominn til að dusta rykið af þessum sáttmála.

Blómin og friðurinn

Andrúmsloftið milli leiðtoganna á fundinum í Höfða 1986 var gott og spyrja má hvort afslöppuð lífsskoðun margra Íslendinga um að hlutirnir reddist hafi átt sinn þátt í því. Þannig hafi samband og samtal þeirra orðið einlægara og þeir þess vegna mæst aftur að ári jákvæðari en ella. Og þar gætu blómin líka hafa átt sinn þátt.

 „Allt í kringum leiðtogafundinn var virkilega áhugavert og langt frá okkar veruleika,“ segir Bjarni. „Það er góð tilhugsun að blómin okkar hafi hugsanlega lagt eitthvað af mörkum til heimsfriðar,“ bætir hann við og brosir.

——————————————————

Skógarhúsin

Bjarni Finnsson kann best við sig nákvæmlega svona úti í náttúrunni.

Bjarni við vinnu sína á litlu skurðgröfunni.

Bjarni og meðeigendur hans seldu Blómaval árið 2000. Þá höfðu þau rekið fyrirtækið í rúm 30 ár og kominn tími til að snúa sér að öðru. Bjarni og Hildur hafa átt sér annað heimili á Laugarvatni en þar eiga þau lögbýli sem nefnist Stórholt. Þar hafa þau ræktað trjáplöntur, ber og grænmeti, mest til eigin nota, en nú hafa feðgarnir Bjarni og Baldur Þór hrundið af stað ferðaþjónustufyrirtæki í landi Stórholts. Þar hafa þeir byggt lítil hús sem þeir hyggjast leigja út og hefst sú starfsemi upp úr áramótum. Bjarni er ekki af baki dottinn og heldur enn starfsþreki sínu og unir sér ekki iðjulaus nema í stuttan tíma í einu, alveg eins og þegar mest var að gera í rekstri Blómavals. Þeir feðgar keyptu hlut í lítilli gröfu og segir

Ævintýraleg Skógarhúsin í landi Sórholts.

Baldur Þór að faðir hans hafi  grafið með þessari litlu gröfu alla skurði fyrir vatn, rafmagn og afrennsli og gengið frá lögnum við litlu húsin eins síns liðs. Baldur hafi sjálfur séð um aðra hluti í uppbyggingu fyrirtækisins. Nú sjái þeir fyrir endann á þeirri uppbyggingu í bili og geti hafið rekstur innan tíðar. Vinnuheiti fyrirtækisins er ,,Skógarhúsin“ og ef að líkum lætur verður þar kominn skógur áður en langt um líður.

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna skrifar.