Dillons kakan sló í gegn í vinkonuhittingi

Samstarfskonur frá vinstri. Björg Þórðardóttir, Sigríður Guðnadóttir og Erna Indriðadóttir

 

Þrjár gamlar samstarfskonur ákváðu að hittast hjá Sigríði Guðnadóttur í Þorlákshöfn, en það hafði verið lengi á dagskrá. Þær unnu saman fyrir rúmum 30 árum hjá Ríkisútvarpinu á Akureyri og þrátt fyrir endalaus fyrirheit um að drífa í að hittast, varð minna úr aðgerðum. Það var því ótrúlegt framtak að koma þessu í kring að lokum og Sigríður bauð uppá dýrindis veitingar, þar á meðal þessa ótrúlega köku. Sigríður sendi okkur uppskrift af kökunni, sem hún segir alveg eins og döðlukökuna sem Eva Laufey er með á sínu bloggi.  Sigríður fékk uppskriftina sem hér fer á eftir hjá vinkonu sinni.

Dillons kaka með heitri karmellusósu og rjóma

230 g döðlur, brytjaðar

1 tsk matarsódi

120 g mjúkt smör eða smjörlíki

5 msk sykur

2 egg

120 g hveiti

½ tsk kanill

½ tsk salt

½ tsk vanilludropar

1 ½ tsk lyftiduft

  1. Setjð döðlurnar í pott og látið fljóta yfir þær, látið suðuna koma upp. Takið pottinn af hellunni og látíð bíða í 3 – 4 mínútur. Stappið döðlurnar aðeins með gaffli. Bæti matarsódanum út í og blandið vel og látíð standa smá stund.
  2. Þeytið smjör og sykur vel saman og bætið eggjunum saman við einu og einu í senn. Hrærið vel.
  3. Bætið öllum þurrefnum saman við ásamt vanilludropum .
  4. Að lokum bætið þið dölumaukinu út í (ekki öllu í einu) og hrærið varlega.
  5. Látið deigð í vel smurt kökumót með lausum botni (t.d. 8 cm háu og 24 cm í þvermál) við 180°C í 35 – 40 mín. eða þar til miðjan virðist bökuð.

Karamellusósa

120 g smjör

120 g púðursykur

1 ½ rjómi

½ tsk vanilludorpar (má sleppa)

Látið allt í pott og hitið við vægan hita þar til karmellan fer að sjóða og látið malla í þrjár mín. Hrærið þar til karmellan er orðin hæfilega þykk.

Berið kökuna fram volga eða kalda með heitri sósunni og létt þeyttum rjóma.

 

 

 

Ritstjórn mars 2, 2018 06:54