Grái herinn blæs til sóknar á Húsavík

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum: Framsýn, stéttarfélag – Starfsmannafélag Húsavíkur og Þingiðn, félag iðnaðarmanna, standa fyrir mikilli hátíðardagskrá á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí, í ár á Húsavík sem brýtur blað í sögu slíkra hátíðarhalda á Íslandi. Eftir því sem við komumst næst er þetta í fyrsta skipti í sögunni, hér á landi, sem hátíðarhöldin á baráttudegi verkalýðsins eru tileinkuð eldri borgurum og baráttu þeirra fyrir bættum kjörum í þjóðfélaginu; baráttu fyrir að loks muni renna upp sá dagur að allir aldraðir lifi áhyggjulaust ævikvöld.

Liðsmenn Gráa hersins við stofnun hans: frá vinstri. Helgi Pétursson, Ásdís Skúladóttir, Sveinn Guðjónsson, Gísli Jafetsson, Þórunn Sveinbjörnsdóttir og Erna Indriðadóttir. Einn liðsmanna, Bryndís Hagan Torfadóttir, var fjarstaddur þegar myndin var tekin

Stéttarfélögin þrjú hafa boðið einum af stofnendum Gráa hersins, Ásdísi Skúladóttur leikstjóra, að flytja hátíðarræðu dagsins. Hún mun flytja ræðuna sem fulltrúi eldri borgara. Baráttuhópurinn Grái herinn var stofnaður af félögum í Félagi eldri borgara í Reykjavík.  Með þessari ákvörðun vilja stéttarfélögin styðja við baráttu þeirra fjölmörgu eldri borgara sem hafa lagt stéttarfélögum lið í gegnum tíðina og eru nú komnir á eftirlaun; eftirlaun sem mörgum þeirra reynist erfitt að framfleyta sér á vegna þeirra miklu skerðinga sem þeim er gert að sæta vegna löggjafar um eftirlaun frá almannatryggingum.

Hátíðin verður haldin í Íþróttahöllinni á Húsavík og hefst kl. 14.00 miðvikudaginn 1. maí n.k. Dagskráin er afar fjölbreytt, eins og sjá má: HÉR  Því auk Ásdísar Skúladóttur Gráa hernum, koma fram grínararnir og söngvararnir Guðni Ágústsson, Eyþór Ingi, Sigga Beinteins og Grétar Örvarsson úr Stjórninni, Söngfélagið Sálubót, Reynir Gunnarsson söngvari og Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar. Þá verður fundargestum boðið upp á kaffiveitingar meðan á hátíðinni stendur. Grái herinn hvetur eldri borgara hvaðanæva til að mæta til Húsavíkur.

Ritstjórn apríl 29, 2019 09:46