Hinsegin fólk opnar sig í Hreiðrinu

Fimmtudaginn 6. ágúst verður innsetningin Hreiðrið: sögur um að tilheyra opnuð á Borgarbókasafninu Grófinni. Þar munu gestir og gangandi geta hlýtt á áhrifamiklar frásagnir af því hvað það þýðir að tilheyra og finna sinn stað í samfélaginu. Í tilefni Hinsegin daga verður kastljósinu beint sérstaklega að reynslu og röddum hinsegin fólks.

Auglýsing

Einlægni, húmor og hugrekki. Í tilefni Hinsegin daga fá sögur og raddir hinsegin fólks að hljóma við opnun innsetningarinnar Hreiðursins: sögur um að tilheyra á Borgarbókasafninu Grófinni fimmtudaginn 6. ágúst.

Hreiðrið er notalegt horn á annarri hæð safnsins í Grófinni, rými fyrir samtal, samkennd og ólíkar raddir, á tímum þegar sífellt fleiri upplifa sundrung og fjarlægð. Á Hinsegin dögum verður þar hægt að hlýða á áhrifamikil og einlæg viðtöl við hinsegin fólk sem segir ýmist frá bókum, kvikmyndum, ljóðum, leikhúsverkum eða tónlist sem hefur vakið hjá því tilfinningu um að tilheyra og verða umræddir gripir jafnframt hafðir sýnis í Hreiðrinu.

Upptökurnar, sem eru annað hvort á íslensku eða ensku, eru níu talsins, jafn ólíkar og þær eru margar, en eiga þó það sameiginlegt að hreyfa við hlustendum og varpa ljósi á mikilvægi þess að finna sér stað í samfélaginu.

Viðmælendur eru þau Ólafur Aðalsteinsson, Rebecca Hidalgo, Ólafur Helgi Móberg Ólafsson (Starína), Reyn Alpha Magnúsdóttir, Sebastían Oddný Arnarson, Sindri Sparkle Freyja, Dori Baldvinsson, Nas og Eliott Spencer.

Opnun Hreiðursins verður fimmtudaginn 6. ágúst frá klukkan 16:00 til 18:0. Þar verður hægt að hlýða á sögur hinsegin fólks í ágúst og út september. Eftir það taka aðrar frásagnir við en sögur hinsegin fólks verða áfram aðgengilegar á heimasíðu safnsins.

Verkefnisstjóri Hreiðursins er Fanny Sissoko. Hreiðrið er hannað af Droplaugu Benediktsdóttur. Uppsetningu innsetningarinnar annaðist Embla Vigfúsdóttir.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is