Karlinn sem fór á undan og konan sem varð eftir

Níels Árni Lund

Níels Árni Lund

Það var skemmtileg stemming á hátíðarkvöldverðinum á Hótel Örk á fimmtudagskvöldinu, en þá var dvöl Sunnlendinga á sparidögum sem sagt var frá hér á síðunni, að ljúka. Níels Árni Lund fór á kostum í veislustjórninni og reitti af sér brandarana. Lifðu núna fékk leyfi til að birta einn þeirra sem hljómar svona….

Hjónin ákváðu að fara í sólarlandaferð.
Svo illa stóð á að konan komst ekki fyrr en nokkrum dögum seinna svo eiginmaðurinn fór á undan. Þegar hann er kominn á hótelið tekur hann upp fartölvuna og skrifar tölvupóst til konu sinnar. Ekki vildi betur til en svo að hann misritaði einn staf í póstfanginu og lenti pósturinn því óvart hjá nýorðinni ekkju sem fyrr um daginn hafði jarðað manninn sinn. Veslings konan var rétt að jafna sig eftir athöfnina, opnaði tölvupóstinn sinn til að líta eftir samúðarkveðjum er við henni blasti bréfið. Þegar sonur ekkjunnar kom heim stuttu seinna, lá hún í yfirliði fyrir framan tölvuna og stóð eftirfarandi ritað yfir skjáinn:
Til: Konunnar sem varð eftir.
Frá: Manninum sem fór á undan.
Efni: Er kominn á áfangastað.
Elskan, er kominn á staðinn heill á húfi. Er einnig búinn að kynna mér allar aðstæður og gera allt klárt fyrir komu þína á morgun. Óska þér góðrar ferðar og bíð þín með óþreyju.
Ástarkveðjur, þinn ástkæri eiginmaður.
P.S. Fjandi er heitt hérna niðurfrá

 

 

Ritstjórn mars 7, 2015 10:30