Lambapottréttur sem toppar flest

Þessi lambakjötsréttur kom skemmtilega á óvart. Uppskriftin dugar fyrir hóp af fólki og ef von er á gestum má sem best gera réttinn deginum áður.

2,5 kíló af úrbeinuðum lambabóg. Snyrtið og skerið í nokkuð stóra bita.

2 laukar, skiptið hvorum lauk í átta báta

3 gulrætur, gróft brytjaðar

3 sellerístilkar, gróft brytjaðir

1 msk. ólífuolía

250 ml. hvítvín

½ l lamba- eða nautasoð

2 msk. tómatpúrra

80 ml. balsemik edik.

6 hvítlauksrif, skorin í þunnar sneiðar

2 góðir rósmarin stilkar (pillið blöðin af)

2 lárviðarlauf

Salt og pipar

Flatblaða steinselja , gróft skorin.

Hitið ofninn í 220 gráður. Setjið lambið, laukinn, gulræturnar og selleríið í ofnfast fat, saltið og piprið. Dreifið olíunni yfir og látið brúnast í ofninum í 20 mínútur. Snúið kjötinu og grænmetinu  þegar tíminn er hálfnaður.

Lækkið hitann í 160 gráður. Takið fatið út og látið fituna renna af kjötinu. Setjið vínið, soðið, tómatpúrruna og balsemikedikið út í fatið og hrærið . Dreifið hvítlauknum og rósmaríninu yfir grænmetið og kjötið og setjið lárviðarlaufin út í fatið. Kryddið með salti og pipar. Lokið fatinu með álpappír og steikið í um það bil tvo tíma.

Hækkið hitann í 180 gráður. Takið kjötbitana til hliðar. Sigtið soðið frá grænmetinu og hendið því. Látið soðið standa í fimm mínútur og fleytið fitu fitu ofan af.  Setjið soðið i pott og látið sjóða niður í 12 til 15 mínútur á meðalhita. Gott að miða við að tveir þriðju séu eftir af soðinu þegar það er tekið af eldavélarhellunni. Setjið kjötbitana aftur í ofnfasta fatið, hellið soðinu yfir og setjið inn í ofn í 15 til 20 mínútur. Stráið steinseljunni yfir og berið fram.  Þennan rétt er gott að bera fram með góðri kartöflumús, eða pasta og góðu salati.

Ritstjórn júlí 26, 2019 07:30