Ofnbakaður þorskur í sítrónurjómasósu

Hvað er betra en að fá fisk í matinn, sérstaklega þegar vorið er komið.  Flesta langar í léttari mat með hækkandi sól. Þessa uppskrift fundum við á síðunni Gott í matinn og höfundur hennar er Gígja S. Guðjónsdóttir.  Það sem til þarf er þetta:

4 þorskstykki (4-5)
50 g smjör
½ bolli rjómi frá Gott í matinn
2 msk. hunangs dijon sinnep
1½ msk. sítrónusafi
Salt og pipar
Skarlottulaukur
Steinselja og sítrónusneiðar

Aðferð:

Fiskurinn er settur í eldfast form og hann kryddaður með salti og pipar á báðum hliðum.

Smátt skorinn skarlottulaukurinn er næst settur yfir fiskinn.

Smjör, rjómi, dijon sinnep, sítrónusafi, salt og pipar er sett í saman í skál. Hitað í örbylgjuofni tvisvar sinnum í 30 sek. og hrært á milli.

Síðan er sósunni hellt yfir fiskinn og hann kryddaður með steinselju og skreyttur með sítrónusneiðum.

Fiskurinn er næst settur inn í ofn í um 20-25 mínútur.

Ritstjórn apríl 26, 2019 09:38