Nú er peysan góða tilbúin eftir nokkuð puð. Afraksturinn er alveg í samræmi við væntingar en þar sem nú er komið sumar og flíkin mjög hlý verður hún líklegast ekki notuð fyrr en fer aftur að kólna í veðri. Ég réðist ekki á garðinn þar sem hann var lægstur en þar sem ég hafði Gyðu Einarsdóttur mér við hlið gekk allt eins og í sögu og ég er sannarleg reynslunni rikari. Nú get ég vonandi prjónað aðra peysu hjálparlaust.
Þetta er sannarlega búið að vera lærdómsríkt og skemmtilegt ferli og ég er fallegri peysu ríkari. Ég komst að því að prjónaskapur er heilandi iðja og kennir manni þolinmæði. Nú skil ég alla þá sem hafa varið óhemju miklum tíma við prjónaskap í stað þess að stunda iðjuleysi og sjónvarpsgláp.
Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður lifðu núna skrifar.







