Tengdar greinar

Tilvalið að telja fugla með barnabörnunum

Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður dagana 25.-28.janúar 2019.

Framkvæmd athugunarinnar er einföld, segir í fréttatilkynningu frá Fuglavernd. Það eina sem þáttandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma einhvern þessara daga. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. Þáttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og þá er miðað við mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir. Talningin miðar við þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir. Ekki má leggja saman. Þetta er til að forðast tvítalningar á sama fuglinum, sem ef til vill kemur á 15 mínútna fresti í garðinn. Þá er hann skráður sem 1 fugl ekki 4.

Að lokinni athugun skal skrá niðurstöður rafrænt á vef Fuglaverndar www.fuglavernd.is

Ef fuglunum er ekki gefið reglulega þá er gott að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund. Epli eru vinsæl hjá mörgum fuglum og auðvelt að koma þeim fyrir með því að skera þau í tvennt eða stinga kjarnann úr þeim og festa á trjágrein.

Nánri upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra er hægt að finna á vef Fuglaverndar, í Garðfuglabæklingi félagsins sem kaupa má í vefverslun á www.fuglavernd.is   Einni er hægt að kaupa fóðurhús og fóður sem selt er til styrktar félaginu.

Frekari upplýsingar um garðfuglahelgina er að finna á vef Fuglaverndar: https://fuglavernd.is/verkefnin/garðfuglar/garðfuglahelgi/

Á vef Fuglaverndar má skrá niðurstöður rafrænt og einnig er hægt að hlaða niður hjálparblaði talningarinnar, sem er með myndum af algengum fuglategundum og er það tilvalið fyrir börn og þá sem eru að stíga fyrstu skrefin í fuglaskoðun.

Um Fuglavernd

Fuglavernd eru frjáls félagasamtök um verndun fugla og búsvæði þeirra. Fuglavernd telur um 1300 félagsmenn. Fuglavernd er aðili að samtökunum BirdLife International sem vinna að verndun fugla og náttúrusvæða í 120 löndum.

Síminn hjá Fuglavernd er 562 0477 og netfang fuglavernd@fuglavernd.is

 

 

 

Ritstjórn janúar 24, 2019 12:42