Óviðjafnanlegur Óli Gränz

Ólafur Gränz, jafnan kallaður Óli, er stór og fyrirferðarmikill maður, enda Vestmannaeyingur og það væri líklega fljótlegra að telja það upp það sem hann hefur ekki lagt stund á, en hitt sem hann hefur gert. Hann er lærður smiður, á sjö börn, hefur rekið trésmíðaverkstæði, byggingavöruverslun, bílaleigu, bátaferðafyrirtæki, bókaútgáfu og gegnt formennsku í óteljandi félögum. Auk þess hefur hann ferðast víða um heim og dansað rokk og ról fram á morgun, ýmist hér heima eða í útlöndum, án þess að drekka dropa af áfengi. Núna er hann formaður Hollvinafélags heilsustofnunar NLFÍ en þar stendur fyrir dyrum sextugsafmæli í sumar.

Allt orðið yfirfullt af bílum

Óli býr ásamt konunni sinni Iðunni Guðmundsdóttur á áttundu og níundu hæð í stórri blokk í Breiðholti. Þangað ætlaði hann aldrei að flytja, en þeim líkar vel að búa í Breiðholtinu þar sem blokkirnar standa í kringum stórt opið svæði. Þar eru aðalinngangar í húsin, því þegar húsin voru byggð tíðkaðist að íbúarnir tækju strætó, þar sem fáir áttu bíla. Það var ekki reiknað með að þeir ækju upp að dyrum. „Það er tímanna tákn, að enginn gengur nú um aðalinngangana hér, heldur koma menn að bakinngöngunum þar sem hægt er að aka að og leggja, og allt er yfirfullt af bílum“, segir Óli.

Á inniskónum í fiskbúðina

Áður en þau Iðunn fluttu í Breiðholtið, bjuggu þau í Ásholti í nýju húsi ofarlega á Laugavegi. „Það var svo mikil mengun þar og traffík allan sólarhringinn“, segir Óli. „Þar var líka langt í alla þjónustu miðað við það sem er hér. „Hérna fer maður á inniskónum út í bakarí og í fiskbúðina“, segir hann Þau hafa búið á sama stað í Breiðholtinu í 16 ár og hafa ekki setið auðum höndum. Óli vann við bókaútgáfu, en Iðunn sem er kennari, hætti að vinna fyrir nokkrum árum. Þau hafa ferðast mikið og stundað leikfimi og dans um árabil. En aðstæðurnar breyttust þegar Iðunn veiktist fyrir þremur árum. Hún fékk tvo blóðtappa í heila og síðan heilablóðfall.

Missti málið

Á Tenerife, klukkustund áður en Iðunn fékk heilablóðfall

Á Tenerife, klukkustund áður en Iðunn fékk heilablóðfall

Þau voru á ferðalagi á Tenerife þegar Iðunn veiktist og var flutt á sjúkrahús, þar sem læknir frá Kúbu gerði á henni aðgerð. Hún missti máttinn, en náði stórkostlegum bata og þurfti að vera í 3 mánuði á Grensási. Óli hætti bókaútgáfunni og var með henni á hverjum degi í heilt ár og æ síðan. Hann pakkaði hreinlega saman, eins og hann orðar það. Síðustu árin áður en hann „pakkaði saman“ var hann í bókaútgáfu. Hann gaf út bækur um nokkur lönd. „Ég fór til Kína og gaf út bók um Kína. Ég fór líka til Færeyja og gaf út bók um Færeyjar. Sú bók seldist upp á nokkrum vikum og er mest selda bókin í Færeyjum, fyrir utan Biblíuna náttúrulega“ segir Óli, sem einnig gaf út bækur til dæmis um Norðurlöndin, Þýskaland, Kanada og Íran.

Afdrifaríkt dansnámskeið

Brúðarmynd  Iðunn og Óli

Brúðarmynd Iðunn og Óli

Iðunn og Óli hittust á dansnámskeiði hjá félagsskapnum Komið og dansið í Templarahöllinni fyrir 24 árum. Þá voru þau um fimmtugt og bæði gift. „Ég var búinn að vera giftur í Vestmannaeyjum og átti 7 börn og Iðunn var gift og átti 3 börn“. Það var alger tilviljum að þau fóru á þetta námskeið. Félagi Óla ætlaði að gera honum grikk og skráði hann á námskeiðið. Hann ætlaði að þverskallast við að fara, en lét sig hafa það. Iðunn hafði bara ætlað að kíkja á þetta. En ástin lætur ekki að sér hæða. Þau skildu bæði og giftust.

Fékk nóg af barnastússi

Óli fæddist og ólst upp í Vestmannaeyjum í sex systkinahópi. Iðunn sem fæddist vestur á fjörðum, ólst upp á Eyrarbakka frá fjögurra ára aldri, en hún er dóttir

Óli Gräns lengst til vinstri í efri röð. Við hið hans er Ólafur Gränz faðir hans og síðan móðir hans Ásta Gränz og Sonja systir hans.  Í neðri röð frá vinstri eru systkinin, Henry Gränz, Violetta Gränz, Hulda Gränz og Róbert Gränz

Óli Gräns lengst til vinstri í efri röð. Við hið hans er Ólafur Gränz faðir hans og síðan móðir hans Ásta Gränz og Sonja systir hans. Í neðri röð frá vinstri eru systkinin, Henry Gränz, Violetta Gränz, Hulda Gränz og Róbert Gränz

Guðmundar Daníelssonar rithöfundar. Faðir Óla lést aðeins 48 ára og þá var Óli 19 ára. Fjögur yngri systkini voru þá á heimilinu, það yngsta 6 ára. Hann eignaðist síðan sjálfur 7 börn með fjórum konum. Börnin mín eru öll afar sjálfstæð og duglegt fólk, „þau hafa aldrei beðið mig um að lána sér peninga og þau hafa heldur aldrei beðið mig um að gæta barnanna sinna, eða „passa“ segir Óli sem hefur fengið nóg af barnastússi um dagana. En hann segir börnin sín, tengdabörnin og barnabörnin dásamleg og það sé frábært að eyða tíma með þeim. Þetta er enginn smáhópur, því Óli og Iðunn eiga samtals 46 börn og barnabörn. Það er því fjölmennt í fjölskylduboðum og Óli og systkini hans halda þar að auki jólaboð fyrir stórfjölskylduna á hverju ári. „Það eru yfir 100 manns þannig að við tökum alltaf félagsheimili á leigu“, segir hann.

Stóð uppi allslaus eftir gos

Gosið í Vestmannaeyjum 1973

Gosið í Vestmannaeyjum 1973

Óli var fyrstur manna til að sjá eldgosið í Vestmannaeyjum 23. janúar 1973. „Við vorum að ganga þarna tveir félagar um klukkan eitt um nótt og sáum jörðina rifna fyrir framan okkur. Ég tapaði öllu í gosinu. Bílnum var stolið á hafnarbakkanum í Reykjavík og ég sá hann aldrei meir. Innbúið týndist og fannst eftir þrjá mánuði. Íbúðarhúsið fór undir hraun og verkstæðið brann upp. Ég stóð uppi í Reykjavík sjö barna faðir, allslaus. Mér fannst leikurinn tapaður og fannst að ég myndi aldrei eignast neitt framar“,segir Óli. En hann átti eftir að flytja aftur  til Eyja og koma undir sig fótunum á ný. Árið 1986 fór hann hins vegar til Reykjavíkur til að innheimta óuppgerða skuld og ílentist þar.

Þvælist inní þetta

Hann segist ekki vita hvers vegna hann hafi orðið formaður í svona mörgum félögum. „Maður þvælist alltaf inní þetta“ segir hann. Hann var formaður í Hjónaklúbbnum Laufinu, í stjórnum ótal félaga og formaður iðnnema í Vestmannaeyjum þegar hann var að læra. „Svo gekk ég í AA samtökin og þá urðu margir hissa“ segir hann. Fólk kom til hans og sagði „Ég vissi ekki að þú smakkaðir það“. En sér hafi ekki líkað að geta ekki keyrt bíl eftir áfengisdrykkju og svo hafi komið fyrir að hann drykki of mikið og gerði alls kyns vitleysu. Fljótlega flykktist fólk í félagið þar sem Óli hélt uppi fjörinu og AA samtökin í Vestmannaeyjum urðu mest áberandi félagið innan samtakanna á landsvísu. Eitt sinn þegar stofna átti AA samtök í Keflavík var leitað til Vestmannaeyinga um að mæta. Þeir leigðu Fokker vél og skruppu á fundinn. Voru fleiri Eyjamenn á stofnfundinum en Keflvíkingar.

Safna 40 milljónum fyirr heilsustofnun NLFÍ

Iðunn og Óli hafa verið mörgum sinnum í Hveragerði, sér til heilsubótar og hressingar. Óli segir þetta sérstaklega mikilvægt eftir að Iðunn veiktist. Hann hefur sjálfur glímt við bakvandamál. Óli er að sjálsögðu potturinn og pannan í félagslífinu á Heilsustofnun þær vikur sem hann dvelur þar. Hann segir að sér hafi verið ýtt út í að verða formaður Hollvinasamtaka stofnuninnar. „Ég þótti efnilegur formaður“, segir hann sposkur. Hann segir að menn séu mjög spenntir fyrir sextugs afmæli Heilsustofnunar sem verður haldið hátíðlegt 28.júní. Hann segir að samtökin safni fyrst og fremst peningum til að efla og styrkja rekstur stofnunarinnar og að á tíu árum hafi samtökin safnað hátt í 40 milljónum króna fyrir stofnunina.

Sumarauki í haust

Óli og Iðunn eru ekki sest í helgan stein, þó veikindi Iðunnar hafi vissulega sett strik í reikninginn. Á síðasta ári ferðuðust þau mikið bæði innanlands og utan, og voru samanlagt í burtu í sex og hálfan mánuð. „Nú erum við búin að panta okkur ferð til Tenerife“ segir Óli, en þangað ætla þau að sækja sér sumarauka í haust.

Ritstjórn júní 21, 2015 10:00