Ellin er ekki fyrir skræfur

Sandra

Sandra LaMorgese

„Leikkonan Betty Davies sagði einhvern tímann að „ellin væri ekki fyrir skræfur“. Hún lét meira að segja sauma þessi orð í sófapúða þannig að fullyrðingin myndi blasa við öllum hennar gestum. Þar sem ég er nýorðin sextug er ég farin að taka þessi orð til mín  og finnst að Betty hafi  haft rétt fyrir sér,“ segir Sandra LaMorgese pistlahöfundur á Huffington Post. Lifðu núna endursagði og stytti lítillega.

„Eitt sem ég heyrði oft í afmælisvikunni var að: „Þú lítur vel út miðað við sextuga!“ Hvað þýðir það eiginlega? Eiga allir sextugir að líta illa út? Væri ég 45 og liti út eins og ég geri nú, væri það þá hörmulegt útlit?

Og ekki nóg með það því um leið og ég varð sextug fór fólk allt í einu að ræða við mig um gigt, verki í liðum og aðrar meinsemdir. „Hvernig er það Sandy, hvernig eru liðirnir?“ „Hvernig gengur þér að komast um?“ Á allri minni ævi hefur enginn rætt þessa hluti við mig og ég hef enga þörf til að ræða þá eingöngu vegna þess að ég varð sextug.

Aldursmismunun er raunverulegt vandamál í samfélagi okkar. Mismununin getur haft mikil áhrif á það hvernig við sjáum okkur sjálf og hvernig við teljum að okkur beri að hegða okkur.  Þar að auki er svo enn verra að vita að samkvæmt rannsóknum verða konur mun frekar fyrir mismunun vegna útlits heldur en karlar. Í rannsókn frá  SUNY í Buffalo segir: „Eldri konur upplifa í raun mun meiri mismunun en eldri karlmenn vegna þess að útlit skiptir konur meira máli og aldur fer verr með útlit kvenna en karla.“

Þessi neikvæðu skilaboð geta orðið hluti undirmeðvitundar okkar ef við leyfum það. Við höfum getu til að velja og breyta hugsanagangi okkar og tifinningum til að skapa jákvæðan veruleika sem yfirskyggir aldur og væntingar samfélagsins,“ segir Sandra og vitnar í grein í Indian Journal of Psychology.

„Vitund okkar hefur mikil áhrif á efnaskipti líkamans. Vitund sem stjórnast af því hverju við trúum um okkur verður að efnaskiptum. Hver einasta fruma í líkama okkar er meðvituð um hugsanir okkar, tilfinningar og trú. Ef þú trúir því að þú sért viðkvæm hlýða efnaskiptin því og staðfesta. Trú á eigin mátt veldur því að líkami þinn endurspeglar styrk án tillits til þéttni beina og þyngdar. Þegar þú trúir því að þú sért þunglynd mun líkami þinn bregðast við því á sama hátt.“

Hvað þýðir þetta svo? Þetta þýðir að þú en ekki aldur þinn stjórnar því hvernig þér líður. Uppspretta lífsorku er jákvæður og óbugaður hugur sem viðheldur draumum og markmiðum. Líkami þinn mun bregðast við huga þínum og svo lengi sem þú viðheldur huganum og hjartanu mun líkami þinn fylgja með. Væntu ávalt heilsu og hamingju og þannig muntu skapa veruleika sem styður þessar hugsanir og tilfinningar.

Já og ellin er vissulega enginn staður fyrir skræfur. Það eru margar hindranir í veginum eins og þínar eigin áhyggjur eða væntingar annara til þín sem eldri borgara en á meðan þú manst að það ert þú sem stjórnar þinni eigin velferð mun þetta takast alveg sama hvað dagatalið segir þig gamla. Haltu fast í sjálfa þig og láttu þér í léttu rúmi liggja hvað samfélagið segir að þú eigir að vera. Það kostar kjark,“ segir Sanda í lok pistils síns.

 

 

Ritstjórn ágúst 23, 2016 09:02