Heitir jóladrykkir

Fallegt.

Það getur verið afar notalegt að fá sér heita drykki á aðventunni. Jólaglögg er einn þeirra drykkja sem mörgum finnst gott að fá annaðhvort á síðkvöldum eða fá sér eitt og eitt glas  í önnunum sem fylgja jólunum.

Jólaglögg

1 flaska þurrt rauðvín

1 appelsína skorin í sneiðar

¼ bolli brandy (má sleppa)

¼ bolli hunang eða sykur

8 negulnaglar

2 kanilstangir

2 stjörnuanísar

Ef vill má nota appelsínusneiðar, stjörnuanís eða kanilstangir til að skreyta glösin með.

Setjið allt vínið, sykurinn, appelsínuna, og kryddið í pott og hitið að suðu. Hrærið í pottinum á meðan blandan er að hitna. Þegar lögurinn er orðinn vel heitur lækkið hitann og látið malla  í eina til þrjár klukkustundir. Sigtið kryddið og appelsínurnar frá og hellið blöndunni í glös. Skreytið með kanilstöng, stjörnuanís eða appelsínusneið.

Óáfeng jólaglögg

2 bollar vatn

1 bolli sykur

2 msk. negulnaglar

2 kanilstangir, brotnar

2 tsk. saxað ferskt engifer

4 bollar eplasafi

2 bollar appelsínusafi

4 msk. sítrónusafi

Sjóðið saman vatn og sykur í 10 mínútur. Setjið negulnaglana, kanilstangirnar og engiferið í grisjupoka og látið vera í sykurleginum í klukkustund. Hrærið ávaxtasöfunum saman við og hitið að suðu. Fjarlægið kryddpokan og hellið í glös. Skreytið glösin með appelsínusneiðum. Hægt að bera fram annað hvort heitt eða kalt.

 

Heitt toddý

Hlýjar og vermir.

240 ml (u.þ.b. 8 einfaldir) whisky, bourbon eða brandy

6 msk. hunang

2 sítrónur

4 bollar epla sider

4 earl grey tepokar

4 kanilstangir

Setjið áfengið, siderinn, kanilstangirnar og hunangið í pott og hitið að suðu. Hrærið í blöndunni svo hunangið leysist upp. Takið af hitanum og bætið tepokunum út í. Látið standa í tvær mínútur. Fjarlægið tepokana og kreistið safa úr hálfri sítrónu út í. Skiptið blöndunni í fjögur stór glös eða könnur. Skreytið með kanilstöngum og sítrónubátum.

Einfaldasta toddy í heimi

Það er hægt að búa til mjög einfalt toddy með því einu að laga te og setja sítrónusneið og kanilstöng út. Svo er einfaldlega hægt að bæta út í þetta slurk af rommi. Magnið fer eftir því hversu sterkt hver og einn vill að toddyið sé.

Heitt súkkulaði

Heitt súkkulaði er alltaf jafngott.

Fátt jafnast á við heitt súkkulaði og það er mjög einfalt að laga það.

175 g. suðusúkkulaði

2 dl vatn

1 l mjólk

salt

Hitið vatnið og látið súkkulaðið bráðna í því, hrærið á meðan súkkulaðið er að bráðna. Bætið mjólkinni út í og hitið að suðu. Saltið eftir smekk. Berið súkkulaðið fram með þeyttum rjóma og rifnu súkkulaði. Sumum finnst gott að bragðbæta það með smá rommi en það er engin nauðsyn á því.

 

 

 

 

 

 

Ritstjórn desember 7, 2017 11:21