Hvað fá eldri borgarar á höfuðborgarsvæðinu að borða sem kaupa tilbúinn mat af hinu opinbera. Lifðu núna ákvað að skoða hvað væri boðið uppá. Á vef Reykjavíkurborgar eru birtir matseðlar fyrir vikuna bæði fyrir þá sem kjósa að borða á Vitatorgi við Lindargötu eða í félagsmiðstöðvum sem reknar eru á vegum borgarinnar og líka þá sem kjósa að fá matinn sendan heim. Matseðlar vikunnar líta þannig út.
Vikumatseðill á félagsmiðstöðvum og á Vitatorgi
Mánudagur: Rauðspretta í raspi með remólaði, salati og kartöflum.Tómatsúpa
Þriðjudagur: Kindabjúgu með kartöflum í jafningi og grænum baunum. Tær súpa
Miðvikudagur: Kjötbollur með brúnni sósu, grænmetisblöndu og kartöflum. Lauksúpa
Fimmtudagur: Nætursöltuð ýsa með kartöflum, rófum, smjöri og rúgbrauði. Kakósúpa og tvíbökur
Föstudagur: Ofnbakaðar grísasneiðar í soðsósu með brúnuðum kartöflum og soðnu grænmeti. Jarðhnetusúpa
Laugardagur: Steikt ýsa með dillkartöflum, jógúrtsósa og spergilkál. Súpa dagsins
Sunnudagur: Kryddlegin kjúklingalæri, kartöflubátar,salat og austurlensk sósa. Frómas með ávöxtum
Heimsendur matur í Reykjavík
Mánudagur: Fiski lasagne með paprikusósu, kartöflum og salati. Grænmetissúpa
Þriðjudagur: Lambasnitsel með soðnum kartöflum, kryddsmjöri og rauðkáli. Kokteilávextir og þreyttur rjómi
Miðvikudagur: Rauðspretta í raspi með remólaði, salati og kartöflum. Tómatsúpa
Fimmtudagur: Kindabjúga með kartöflum í jafningi og grænum baunum. Tær súpa
Föstudagur: Kjötbollur með brúnni sósu, grænmetisblöndu og kartölfum. Lauksúpa
Laugardagur: Nætursöltuð ýsa með kartöflum, rófum smjöri og rúgbrauði .Kakósúpa
Sunnudagur: Ofnbakaðar grísasneiðar í soðsósu með brúnuðum kartöflum og soðnu grænmeti. Jarðhnetusúpa
Máltíðin kostar 775 krónur, þeir sem kjósa að fá matinn sendan heim greiða heimsendingargjald sem er 210 krónur.
Það er líka hægt að finna matseðil fyrir þá sem kjósa að kaupa mat hjá Mosfellsbæ á heimasíðu bæjarins.
Þetta er í matinn í Mosfellsbæ þessa vikuna.
Mánudagur: Fiskibúðingur, kartöflur, blómkál og feiti. Makkarónusúpa
Þriðjudagur: Hakkréttur, kartöflur, grænmeti, hrásalat og sósa. Aspassúpa
Miðvikudagur: Steiktur fiskur, kartöflur, gulrætur og laukfeiti. Kjúklingasúpa
Fimmtudagur: Lambabjúgu, kartöflur, gulrætur og grænar baunir, jafningur. Brauðsúpa með rjóma
Föstudagur: Appelsíngljáður grísahnakki, rauðkál, brúnaðar kartöflur og sósa. Búðingssúpa með saft
Laugardagur: Soðinn fiskur, kartöflur, gulrætur og sósa. Grjónagrautur með kanilsykri
Sunnudagur: Lambasnitsel, steiktar kartöflur, brokkálsmix og sósa. Sveppasúpa