Stundum getur verið gaman og þægilegt að hitta vini eða vandamenn, án þess að þurfa nokkuð að hafa fyrir því. Fyrir þá sem finnst gaman að smakka smørrebrød, má benda á að það er hægt að kaupa slíkt góðgæti í Hagkaup, bæði í Kringlunni í Reykjavík og í Garðabæ og bjóða uppá heima. Hugsanlega fæst það í fleiri Hagkaupsbúðum, en það er merkt Sælkeraborð Hagkaups. Þetta eru fjórar tegundir smørrebrøds, eins og sést hér á myndinni til vinstri. Smørrebrød með hangikjöti, smørrebrød með rækjum, smørrebrød með reyktum laxi og smørrebrød með roastbeef. Hverri brauðsneið er pakkað í sérstakan bakka með loki og sósa í litlu boxi fylgir með.
Smørrebrød Hagkaups er líka kjörið ef vinir boða komu sína í heimsókn með litlum fyrirvara. Bara að skjótast í búðina. Hérna á síðunni sjást myndir af þessu lystuga brauði, en blaðamaður Lifðu núna prófaði þetta sjálfur.
Bauð vinum í mat fyrir leikhúsferð, kom við í Hagkaup og keypti brauðið, átti bjór/pilsner í skápnum og málið dautt. Mjög ljúffeng máltíð án nokkurrar fyrirhafnar, ef menn eru til í að borga fyrir það. Að smyrja brauðið heima er auðvitað ódýrari kostur fyrir þá sem kunna það og hafa tíma til þess. Brauðsneiðin tilbúin í Hagkaup kostar 995 krónur. Fjórar brauðsneiðar kosta því 3980 krónur. Tvímælalaust ódýrara þó, en að kaupa smørrebrød á veitingastað.