Ársskýrsla Tryggingastofnunar birt

Um 85 þúsund fengu greitt frá TR árið 2025

Á ársfundi Tryggingastofnunar (TR) sem var haldinn í dag kom fram að á árinu 2025 fengu 85.842 einstaklingar greiðslur frá TR. Þetta er aukning í fjölda einstaklinga um 2,5% milli ára sem endurspeglar bæði lýðfræðilega þróun samfélagsins og aukna eftirspurn eftir stuðningi, sérstaklega vegna sjúkra- og endurhæfingargreiðslna. Heildargreiðslur TR námu tæplega 250 milljörðum króna á árinu. Þetta kemur meðal annars fram í ársskýrslu TR fyrir árið 2025.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra ávarpaði ársfundinn og ræddi meðal annars um það mikla álag sem innleiðing nýs kerfis var fyrir starfsfólk TR og þakkaði hann starfsfólkinu sérstaklega fyrir að hafa sinnt öllum sínum verkefnum af ábyrgð og fagmennsku og sýnt af sér bæði seiglu og ríka þjónustulund.

Huld Magnúsdóttir forstjóri TR

Um 22% fjölgun á áratug

Frá árinu 2015 hefur einstaklingum sem fá greiðslur frá TR fjölgað um 22% eða úr 70.128 í 85.842. Á þessum tíma hefur fjöldi karla með greiðslur frá TR aukist um 31% og fjöldi kvenna um 17%. Þrátt fyrir það eru konur enn mun fjölmennari hópur sem fær greiðslur en karlar. Almennt eru konur um 60% þeirra sem fá greitt frá almannatryggingum. 

Ef litið er til þróunar helstu greiðsluflokka TR sem hlutfall af íbúum hér á landi síðustu 10 árin má sjá að hlutfall ellilífeyrisþega hækkar úr 10,4% árið 2015 í 11,6% árið 2025. Hlutfall þeirra sem fá örorkulífeyri hjá TR af landsmönnum búsettum á Íslandi hefur verið nokkuð stöðugt síðastliðin 10 ár eða rúmlega 5% en hlutfallið fer þó lækkandi. Einstaklingum sem fá sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hjá TR fjölgar sem hlutfall af landsmönnum úr 0,9% árið 2015 í 2,2% árið 2025. Samtals voru 45.547 einstaklingar með ellilífeyri, 20.836 með örorkulífeyri og 8.629 einstaklingar með sjúkra- og endurhæfingargreiðslur árið 2025.

Greiðslur

Greiðslur vegna ellilífeyris námu 122,6 milljörðum króna og hækkuðu um 10% milli ára. Greiðslur vegna örorkulífeyris námu 85,3 milljörðum króna og hækkuðu um 9% milli ára. Sjúkra – og endurhæfingargreiðslur námu 28,4 milljörðum króna og hækkuðu um 37% milli ára. Greiðslur úr flokki annað sem eru meðal annars  ýmsar greiðslur tengdar fjölskyldumálum og bifreiðamálum námu 13,2 milljörðum króna og höfðu ekki hækkað milli ára.

Umfangsmiklar kerfisbreytingar

Eitt stærsta umbótaverkefni í almannatryggingum í áratugi – var innleiðing nýs kerfis örorku og endurhæfingar sem tók gildi 1. september 2025. TR bara ábyrgð á innleiðingu kerfisins og var stuttur tími til undirbúnings sem fól í sér víðtækar breytingar á lögum, regluverki, verklagi, þjónustu og tæknilegum innviðum.

Nýtt kerfi byggir á breyttri hugmyndafræði þar sem færni og þátttaka einstaklinga er metin í heildrænu samhengi. Innleiðing samþætts sérfræðimats, byggðu á ICF-kerfi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, markar grundvallarbreytingu frá fyrra matskerfi. Jafnframt urðu til nýir greiðsluflokkar og samstarf milli þjónustuaðila innan velferðar- og heilbrigðiskerfisins var aukið, meðal annars með stofnun svæðisbundinna samhæfingarteyma um allt land sem TR leiðir.

Öflug fræðslustarfsemi

Á árinu 2025 var haldinn mikill fjöldi námskeiða og boðið upp á fræðslu og kynningar víða um land um nýtt kerfi, hjá fagaðilum, hagsmunaaðilum og í húsnæði TR með bæði stað- og fjarfundum. Mikil vinna hefur verið lögð í fræðsluefni og því verið vel tekið. Öll fræðsla hefur verið veitt án endurgjalds, handbækur og námsefni verið aðgengilegt á vef TR og sérstök áhersla lögð á gagnsæi og gott aðgengi að upplýsingum.

Fjöldi stöðugilda óbreyttur

Í árslok 2025 störfuðu 111 starfsmenn hjá stofnuninni í 102,4 stöðugildum. Á sama tíma og viðskiptavinum hefur fjölgað um rúm 22% á síðustu tíu árum hefur fjöldi stöðugilda staðið nær óbreyttur. Þetta undirstrikar bæði mikla skilvirkni og þann verulega álagsvöxt sem starfsfólk hefur tekist á við af fagmennsku og ábyrgð. Í niðurstöðum um Stofnun ársins hækkaði heildareinkunn TR úr 3,97 í 4,15 á milli ára. 

Traust til TR óx á milli ára

Á árinu 2025 afgreiddi TR tæplega 33 þúsund erindi, tók á móti rúmlega 78 þúsund símtölum og það voru yfir 22 þúsund viðtöl í þjónustumiðstöð. Jafnframt hefur stafræn þjónusta vaxið hratt. Innskráningar á Mínum síðum TR voru yfir einni milljón og heimsóknir á vefinn tr.is fóru yfir 1,2 milljónir á árinu. Árleg þjónustukönnun okkar sýndi að traust til TR fór vaxandi á milli ára og ánægja viðskiptavina með þjónustu mældist mikil.

Hér er hlekkur á ársskýrsluna 2025