Fannst þér bókin betri?

Allt frá því farið var að skrifa bækur hefur þekkst að endurgera sögurnar fyrst í munnlegum flutningi, þá á leiksviði og síðustu hundrað ár eða svo í kvikmyndaformi. Sumar skáldsögur eru meira að segja svo góðar að búið er að gera ótal myndir og sjónvarpsþætti eftir þeim. Árið í ár er engin undantekning frá þessu og hér eru nokkrar nýjar myndir eftir bæði gömlum og nýjum bókum.

Ástríða út yfir gröf og dauða

Bókin Wuthering Heights eftir Emily Jane Brontë hefur orðið ótal listamönnum uppspretta að nýjum verkum. Margoft hafa verið gerðar kvikmyndir eftir henni og sú nýjasta kom út í ár með þeim Margot Robbie og  Jacob Elordi í hlutverkum Catherine Earnshaw og Heathcliff. Flestir þekkja söguþráðinn mætavel og kannski þess vegna óþarfi að rifja hann upp en fyrir þá sem ekki vita þá birtist faðir Earnshaw systkinanna með ungan munaðarleysngja með sér eftir ferð til Liverpool. Heathcliff er, að því er virðist, af rómafólki kominn en enginn veit fyrir víst uppruna hans. Cathrine Earnshaw dregst strax að honum en bróðir hennar, Hinchley, hatar hann. Engu að síður þróast ástarsamband milli Cathrine og Heathcliffs en örlögin reynast þeim grimm.

Erfið heimför

Kvikmynd eftir söguljóði Homers, Ódysseifskviðu, verður frumsýnd í ár. Það er Christopher Nolan sem leikstýrir en Matt Damon er í hlutverki Ódysseifs og Anne Hathaway leikur hina trygglyndu Penelópu. Það er næsta víst að þetta verður bráðskemmtileg  og áhugaverð mynd, enda efniviðurinn nægur. Ævintýri og þrautir Ódysseifs á leið sinni heim til konu sínnar á Íþöku bjóða sannarlega upp á  slíkt. Fyrirhugað er að frumsýna þessa mynd í júlí.

Ekki allt sem sýnist við ritstörfin

Kvikmyndin Verity er gerð eftir skáldsögu Colleen Hoover en hún er vinsæll ástarsagnahöfundur. Í stuttu máli snýst sagan um að Jeremy Crawford ræður ungan rithöfund, Lowen Ashleigh til að klára hálfklárað handrit veikrar eiginkonu sinnar. Sú er vinsæll rithöfundur en nú óvinnufær eftir slys. Lowen flytur inn á heimili hjónanna og kemst fljótt að því að þar er ýmislegt á seiði og ekki allt sem sýnist. Það er Dakota Johnson sem leikur Lowen og Anne Hathaway sem leikur Verity Crawford. Josh Hartnett leikur eiginmanninn. Þessi mynd verður frumsýnd í október í ár.

Hungurleikarnir: Sunrise on the Reaping 

Fyrir þá sem hafa gaman af ævintýramyndum er væntanleg í nóvember kvikmynd eftir nýrri bók Suzanne Collins. Sagan gerist 26 árum áður en fyrstu hungurleikarnir eru haldnir og fyrir þann tíma að nokkur geti ímyndað sér að gerð verði uppreisn undir merki Mockingjay-fuglsins. Að þessu sinni er Coriolanus Snow aðalsöguhetjan og við fylgjumst með hvernig hann aflar sér fylgis og kemst til valda. Það er Ralph Fiennes sem leikur Coriolanus. Þessi mynd verður frumsýnd í nóvember í ár.

Fjandinn heldur sig við Prada

Nú svo má nefna að nýlega kom út framhaldsmynd um blaðakonuna Andreu sem fær vinnu á tískutímaritinu Runway en þær kvikmyndir eru gerðar eftir skáldsögu Lauren Weisberger. Bókin byggði að miklu leyti á eigin reynslu höfundar af því að vinna sem aðstoðarkona Önnu Wintour ritstjóra bandaríska Vogue. Anna er þekkt fyrir járnaga og vinnusemi og það kemur vel fram í bæði bókinni og myndinni. Sem fyrr leikur Meryl Streep ritstjórann, Miröndu Priestley og Anne Hathaway aðstoðarkonuna en svo virðist að stúlkan sú leiki í flestum þeim kvikmyndum í ár sem gerðar eru eftir bókmenntaverkum. The Devil Wears Prada 2 er þegar komin í kvikmyndahús.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna.