Góð næring er lykilatriði þegar nefrennsli, særindi í hálsi, hósti og höfuðverkur hafa lagt mann í rúmið. Já, það er inflúensutíminn og margir finna slappleika sækja að. Öll viljum við að flensan gangi hratt yfir og batinn kemur fljótt. Þá er lykilatriði að velja mat sem styrkir ónæmiskerfið og byggir upp styrk að nýju.
Auðvitað er engin ofurfæða til sem læknar kvef á methraða en það er mikilvægt að borða vel og matvæli af réttri tegund til að styrkja líkamann meðan hann vinnur á sýkingunni. Grænmeti, ávextir og gróft korn eru alltaf góðar fæðutegundir að velja en meðan veikindi herja á er mjög mikilvægt að borða vel af próteinum. Fiskur, egg, baunir og kjöt eru góðir próteingjafar og þótt kvefi og slappleika fylgi oft lystarleysi kemur batinn hraðar ef fólk borðar. Fiskur og baunir eru léttari í maga en kjöt og það má slá tvær flugur í einu höggi og velja feitan fisk. Þá fær líkaminn Omega 3 fitusýrur en þær eru D-vítamínríkar. Það er einnig gott að hafa í huga að borða C-, D – vítamín og sinkríka fæðu en hnetur eru góð uppspretta sinks. Jógúrt, skyr og ostur eru líka góðir próteingjafar. Ef fólk hefur litla lyst er gott ráð að borða minna í einu en oftar yfir daginn.
Borða meiri trefjar!
Íslendingar borða ekki nægilegt magn trefja daglega. Þegar veikindi herja á er ráð að borða eins mikið af þeim og hægt er. Þær eru sérlega góðar fyrir þarmaflóruna en hún gegnir mikilvægu hlutverki í að styrkja ónæmiskerfið. Miðað er við að meðalmanneskja þurfi um 30 grömm af hreinum trefjum daglega til að halda heilbrigðri og fjölbreyttri flóru í þörmunum en flestir borða um 20 g eða minna. Trefjar eru í haframjöli, baunum, ávöxtum, grænmeti og grófu korni. Þunnur hafragrautur eða hafraseyði væri því kjörin fæða þegar legið er í flensu. Það gæti líka verið gott að narta í gulrætur, brokkólíblóm og paprikur. Af þeim er ferskt bragð sem mann klígjar ekki við þegar nefið er stíflað og hálsinn sár. Nú og svo má nefna að dökkt súkklaði inniheldur trefjar.
Annars er ágæt þumalfingursregla að einsetja sér dag hvern að borða eins litríkan mat og nokkur kostur er. Það er nefnilega góð leið til að tryggja heilnæma næringu. Í grænmeti, einkum því sterklitaða eru hollefni eins og karótín, ellagínsýra, resveratról, flavoníðar og fleiri plöntuefni sem eru meinholl og ákaflega styrkjandi. Karótín eru sérlega góð í flensutíð því þau breytast í A-vítamín í líkamanum og efla ónæmiskerfið. C-vítamínríkir ávextir og grænmeti sem inniheldur sink eru sömuleiðis gott val þar á meðal eru sítrusávextir, rófur, brokkólí og paprikur.
Margskonar drykkir hjálpa mörgum þegar særindi í hálsi eru mikil. Jurtate, kombucha, heitt súkkulaði, heitur sítrónusafi og fleiri heitir drykkir geta mýkt hálsinn og dregið úr bólgum í eitlum. Svo gildir einnig að drekka vel, tryggja sér um það bil 1,2 l af vökva á degi hverjum svo líkaminn þorni ekki upp. Hunang í te eða saman við sítrónusafa er einnig þjóðráð því hunangið mýkir hálsinn og í því eru bakteríudrepandi efni.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna.







