Samkynhneigð var lengi falin milli línanna eða í undirtextanum í bókmenntum. Höfundar eins og E.M. Foster og James Baldwin voru snillingar í að skila til lesenda sinna tilfinningum án þess að orða þær nokkru sinni svart á hvítu. Maurice eftir E.M. Foster og Giovanni’s Room eftir James Baldwin eru elskaðar af unnendum bókmennta hvað og hverja sem þeir annars elska. Þessir tímar eru til allra lukku liðnir og höfundar geta í dag miðlað tilfinningum opinskátt og óhræddir og það gerir Jakub Stachowiak í ljóðabókinni Meðan borgin blánar.
Jakub hefur ótrúlegt vald á íslenskri tungu sem er hans annað tungumál og tekst á næman og sérstæðan hátt að sýna sæluvímu ástarinnar, óttann við að missa hana, sorgina þegar það gerist og vonarneistann sem við höldum í von úr viti.
„og.ég fór út
í stað þess að fara
aftur inn í stað
þess að loka mig
af fór ég út og kannski
er þetta það besta
sem þú hefur
kennt mér“
Mikið er gott að koma út, fara út og vera úti. Mikið er gott að ástin hefur fengið rými til að anda, lifa í ferskan loftinu og ástarsorgin líka. Meðan borgin blánar endurspeglar allt sem ástin kennir okkur hvernig svo sem hún kemur til okkur og sýnir að hún skilur ævinlega eftir sig spor í sálum elskanda. Þetta er falleg bók, hlaðin djúpum tilfinningum og ljúfsárum lexíum.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







