Eilíf þreyta og slen!

Þreyta og orkuleysi eru algengustu umkvörtunarefni fólks þegar það leitar til lækna. Margir tala um slen og syfju í eftirmiðdaginn eða að þeir vakni þreyttir. Margar ástæður geta legið að baki þessari tilfinningu og oft ekki auðvelt að finna út hvað veldur en sum lyf geta haft þessar aukaverkanir. Þreyta og slen geta hins vegar haft alvarlegar afleiðingar fyrir eldra fólk því slík líðan eykur líkurnar á að detta, lenda í árekstri og skorta einbeitingu og athygli við dagleg störf.

Auglýsing

Blóðþrýsingslyf, antíhistamín eða ofnæmislyf, sterk verkjalyf og vöðvaslakandi lyf geta öll valdið aukinni þreytu og sleni. Það getur verið flókið að finna leið til að bæta úr því þessi lyf eru mörgum nauðsynleg og enginn ætti að hætta að taka þau án þess að ráðgast við lækni.

Í bandarískri rannsókn sem birt var í fyrra sögðust 43% fólks yfir sextugu finna oft fyrir örmögnun. Fólk talaði um að þurfa að leggja sig yfir daginn, missa fókus eftir hádegi og eiga erfitt með að vakna á morgnana. Læknar eiga það til að telja þetta eðlilegan hluta þess að eldast, sérstaklega ef fólk glímir við önnur aldurstengd vandamál en það er vel þess virði að skoða hvaða lyf fólk er að taka og hvort hluti vandans geti verið áhrif þeirra á almenna líðan.

Mjög margir taka margvísleg lyf daglega án þess að velta því mikið fyrir sér hvað þau gera líkamanum. Sumt er samkvæmt lyfseðli og manneskjunni nauðsynleg en verkjalyf, fæðubótarefni, ofnæmislyf og margvísleg önnur lyf er fást án lyfseðils hafa aukaverkanir. Sum þessara lyfja hafa slævandi áhrif og geta valdið orkuleysi, einbeitingarskorti og annarri vanlíðan. Það kann einnig að vera að þau virki ekki vel í samspili við lyf sem fólk verður að taka. Góð regla er þess vegna að taka aldrei lyf án samráðs við lækni þótt um sé að ræða algeng lyf sem fást í apótekum án lyfseðla.

Áhrif lyfja eru mjög einstaklingsbundin og enginn veit fyrirfram hvernig líkami hans muni bregðast við lyfjagjöf. Aukaverkanir lyfja, jafnvel þótt litlar séu, geta haft áhrif á lífsgæði fólks og þær ber ævinlega að taka alvarlega. Mörgum þykir kannski að það sé þess virði að fá betri líðan líkamlega en stundum er hægt að draga úr áhrifum aukaverkana með því að breyta lyfjagjöfinni lítillega og læknar hjálpa til við að finna nýjar leiðir til að veita meðferð. Stundum getur nægt að breyta tímasetningu á hvenær lyf eru tekin eða breyta lyfjaskammtinum.

Hér eru dæmi um nokkur lyf sem geta valdið þreytu og sleni.

  1. Blóðþrýstingslyf

Lyf til að lækka blóðþrýsting hægja á hjartslætti og veita ákveðna slökun á æðakerfinu. Þetta hjálpar líkamanum að losa sig við vökva og getur valdið því að fólki finnst það þreytt og slappt. Ef slenið verður mikið getur þurft að minnka lyfjaskammtinn. Ef manneskja finnur fyrir slíkum einkennum við inntöku lyfja af þessu tagi ætti hún að varast að keyra bíl eða gera eitthvað sem krefst mikillar einbeitingar fyrst eftir að lyfið er tekið inn.

  1. Ofnæmislyf

Margir þurfa á þeim að halda allt sumarið og byrja að taka þau á vorin. Ef þau valda syfju, sljóleika og þreytu hjá þér ættir þú að hlusta á líkamann og leggja þig frekar en að reyna að sinna daglegum verkefnum. Ofnæmislyf blokka það sem kallast H1 viðtakar í heilanum. Þá er að finna í öllu taugakerfinu og þegar þeir eru svæfðir getur það valdið skyndilegum orkumissi. Ef sú er raunin hjá þér ræddu aðra möguleika við lækninn þinn og skoðaðu hvort nýrri lyf sem hafa ekki sömu aukaverkanir henti þér.

  1. Þunglyndis- og kvíðalyf

Þunglyndis- og kvíðalyf hafa áhrif á taugaboðefnin serótónín og nóraadrenalín. Lyfin efla serótónínð í líkamanum en það vellíðanarboðefni lyftir fólki upp og léttir skapið. Nóraadrenalín vinnur á sama hátt en aukið magn þessara boðefna getur valdið syfju og þreytu. Þau geta einnig valdið svefntruflunum sem aftur ýtir undir þreytutilfinningu yfir daginn og eykur þörfina fyrir að blunda. Góðu fréttirnar eru þær að á markað eru nú komin lyf sem hafa sömu áhrif en án þessara aukaverkana.

  1. Verkjalyf og vöðvaslakandi lyf

Þessar tegundir lyfja veita slökun og hægja á starfsemi líkamans og róa taugakerfið. Þau eru þar með líkleg til að auka þreytutilfiinningu og valda löngun til að sofa og hvílast. Um leið og slaknar á vöðvunum fer likaminn einnig í hvíldarstöðu og um leið eykst svefnþörfin. Það gæti hjálpað í slíkum tilfellum að taka lyfin fyrir svefninn á kvöldin fremur en að taka þau á morgnana eða yfir daginn sérstaklega á meðan líkaminn er að venjast lyfjunum. Á meðan þetta gengur yfir ætti fólk ekki að keyra eða taka sér fyrir hendur vandasöm verkefni sem krefjast vakandi athygli.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.