Hjartaáfall á mánudagsmorgnum

„Hjartað okkar er mikil undrasmíð en eins og með okkur flest á hjartað okkar sínar erfiðu stundir og þá er meiri hætta á því að við fáum hjartaáfall en í annan tíma. Þessar erfiðu stundir hjartans eru helst snemma á morgnanna og þá sérstaklega á mánudagsmorgnum“. Þetta segir Dr. Richard Krasuski hjartasérfræðingur á Cleveland klínikinni í Ohio við vefsíðuna WebMD.

Björn Ófeigsson skrifar um þetta á vefsíðunni sinni Hjartalíf og áframhald greinarinnar er hér fyrir neðan.

Læknar hafa lengi vitað að það eru meiri líkur til þess að fá hjartaáfall snemma á morgnanna og er það vegna nokkurra þátta og aðstæðna sem skapast á þeim tíma.

Þessar aðstæður skapast vegna þess að streituhormónið Cortisol nær hámarki snemma að deginum. Þegar það á sér stað, geta hlutar af kólesteróli sem hefur byggst upp í æðakerfinu á löngum tíma losnað og blóðflæðið til hjartans getur stöðvast.

Þegar bætt er við hækkuðum blóðþrýstingi og hækkuðum púls vegna streitunnar sem fylgir því að byrja nýja vinnuviku eftir helgina, ertu kominn með fullkomna uppskrift af mánudags-morgun hjartaáfalli.

Gott er að vera tímanlega á morgnanna og gefa sér tíma til að fá yfirsýn yfir daginn, draga andan djúpt og vera staðráðinn í því að láta streitu hins daglega lífs helst ekki ná til sín, þrátt fyrir að kannski þurfi að skafa bílrúður.

Þess vegna er það mikilvægt að draga úr streitunni eins mikið og mögulegt er. Farðu í jóga, stundaðu hugleiðslu, stundaðu æfingar, göngur og hlátur er streitulosandi og eykur blóðfæði. Það er líka góð hugmynd að eyða meiri og fleiri gæðastundum með fjölskyldu þinni – hvað sem er sem virkar best fyrir þig.

 

 

Ritstjórn október 25, 2021 14:55