Í öllu umróti felast tækifæri

Árelía Eydís Guðmundsdóttir er afar skemmtilegur rithöfundur enda umfjöllunarefni hennar spennandi þar sem það fjallar um konur, krossgötur, leitina að sjálfum sér og leiðum til að láta drauma sína rætast. Nýjasta bók hennar Umrót er engin undantekning frá þeirri reglu.

Rakel er háttsettur stjórnandi í flottu fyrirtæki í Reykjavík. Hún hefur alla tíð lagt hart að sér og unnið vel fyrir sínu en í stað þess að njóta ávaxtanna finnur hún eingöngu fyrir þreytu og lífsleiða. Hún er komin með alvarleg kulnunareinkenni og sálfræðingurinn hennar ráðleggur henni að taka sér langt frí einhvers staðar erlendis og finna sjálfa sig aftur.

Það er ekki auðvelt fyrir duglega ofurkonu að kyngja því að svona sé komið fyrir henni en Rakel fer að ráðum sálfræðingsins og heldur út til Granada á Spáni. Steinlögð strætin, endalausar tröppurnar og sólin gera í fyrstu ekkert til að bæta andlega líðan. Þegar hún fær svo uppsögn frá vinnuveitandanum finnst henni líf sitt hrynja til grunna en svo kemur sonardóttir hennar út og smátt og smátt fer landið rísa og Rakel að átta sig á að verðmætamat hennar þarfnast hugsanlega endurskoðunar og kannski býður lífið upp tækifæri mitt í öllu umrótinu.

Auglýsing

Að standa á krossgötum 59 ára, eins Rakel er í sögunni, er sannarlega ekki auðvelt en stundum þarf einfaldlega viðhorfsbreytingu til að nýjir möguleikar opnist. Oft erum við alltof upptekin af skyldum okkar og ábyrgð til að muna að við berum fyrst og fremst ábyrgð á okkur sjálfum og oftast er best að treysta öðrum til að leysa sín mál sjálfir. Það er aldrei of seint að byrja upp á nýtt og alltaf í lagi að láta drauma sína rætast og stíga út fyrir þægindarammann. Bækur eru góð afþreying og á sumrin þegar fólk nýtur þess að ferðast er nauðsynlegt að hafa alltaf minnsta kosti þrjár bækur í farangrinum. Umrót eftir Árelíu Eydísi er fyrirtakslesefni á ferðalagi eða bara hvenær sem þörf kviknar til að minna sig á að lífið er ævintýri sem við sköpum sjálf.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.