Nú er í sýningu endurgerð leynilögreglumyndarinnar Murder on the Orient Express sem gerð er eftir sögu Agatha Christie þar sem belgíski furðufuglinn Hercule Poirot fer með aðalhlutverkið. Í endurgerðinni er gaman að sá þekkta leikara, sem allir eru nú komnir á miðjan aldur og yfir, fara með hlutverki aðalpersónanna. Þetta eru leikarar á borð við Keneth Branagh, Judy Dench, Michelle Pfeiffer og Johnny Depp sem öll skila sínum hlutverkum mjög vel. Óhætt er að mæla með þessari kvikmnd fyrir áhugafólk um leynilögreglusögur.