Stundum langar okkur í eitthvað einfalt, bragðgott og fljótlegt. Þessi uppskrift gæti hentað vel í bústaðinn, tjaldútileguna, fyrir þá sem eru á ferð í húsbíl eða bara heima. Uppskriftina fengum við á vefnum Gerum daginn girnilegan og það sem til þarf er þetta.
200 gr. nautasteik
1 súrdeigsbrauð
4 msk olífuolía
Gróft sjávarsalt
4 msk. majónes
1 bolli klettasalat
3 msk balsamikgljái
1 stk Parmareggio parmesanostur
Grillið nautakjötið og kryddið með salti og pipar, látið kjötið hvíla í 10 til 15 mínútur áður en það er skorið niður í þunnar sneiðar.
Veltið brauðsneiðum upp úr ólífuolíu og grillið.
Saltið brauðsneiðarnar með grófu salti og smyrjið með majónesi.
Leggið klettasalat ofan á hverja sneið, raðið nautakjöti á brauðið, hellið balsamikgljáa yfir og stráið að lokum rifnum parmesanosti ofan á hverja brauðsneið.