Ritstjóraskipti hjá Lifðu núna

Steingerður Steinarsdóttir tók við stöðu ritstjóra Lifðu um mánaðamótin, 1. október. Vefurinn er ætlaður fólki sem er komið yfir miðjan aldur. Steingerður er með BA-próf í ensku og fjölmiðlafræði og diplóma i hagnýtri fjölmiðlun. Hún er einnig með diplóma í kennsluréttindum.  Hún á að baki áratuga starfsferil á fjölmiðlum, sem hófst á Þjóðviljanum. Fljótlega fór hún að vinna á tímaritum og var lengst af á Vikunni, fyrst sem blaðamaður og svo ritstjóri frá 2012 til 2022.

Erna Indriðadóttir fráfarandi ritstjóri stofnaði Lifðu núna í byrjun árs 2014 og hefur rekið vefinn síðan. Lestur hans hefur aukist ár frá ári, allar götur síðan og er í dag nokkuð  víðlesinn enda er hann eini fjölmiðillinn sem fjallar eingöngu um lífið eftir miðjan aldur og mun halda áfram að gera það í ritstjórn Steingerðar.  Erna sem er að fara á eftirlaun eftir rúm 40 ár á vinnumarkaði hyggst snúa sér að öðrum verkefnum.

Ritstjórn október 2, 2023 09:41