Hér áður fyrr þegar einhver kvartaði undan höfuðverk var honum gjarnan ráðlagt að fara út og anda að sér fersku lofti. Kannski finnst nútímamönnum að sú þörf hafi horfið með betri híbýlum, góðri loftræstingu og minni notkun jarðefnaeldsneytis við húshitun. Svo er ekki. Það er vísindalega sannað að ferskt loft minnkar streitu, dregur úr
Að sitja inni allan daginn er engum hollt. Þótt húskynni séu góð og vel loftað út verður andrúmsloftið samt alltaf mettað. Það er líka gott fyrir sálina að koma út, upplifa umhverfið og finna veður og vinda á eigin skinni. Hjá sumum er þörfin fyrir útiveru og hreyfingu innbyggð en aðrir þurfa að beita sig aga til að fara af stað en þeir finna engu að síður fyrir ávinningnum eftir á. Vísindamenn hafa lengi rannsakað samband mannsins við náttúruna og hvernig hún getur bæði lagt líkn við þraut og endurnært. Heili okkur nemur umhverfið á mun flóknari hátt en flestir gera sér grein fyrir og það róar taugakerfið.
Hvers vegna er ferska loftið svona gott?
Að taka sér ofurlítið hlé til að anda að sér útiloftinu hefur margvísleg góð áhrif á líkamann. Mjög margir fá sínar bestu hugmyndir á göngu utandyra og aðrir njóta þess að sitja úti og láta sólina baka andlitið. Að hlusta á fuglasöng, finna gróðurilm eða brak í snjó á frostköldum dögum dregur úr streituhormóninu kortisól í blóði, hægir á hjartslætti, lækkar blóðþrýsting og bætir meltinguna. Þetta eru aðeins brot af þeim heilsufarslega ávinningi sem fæst af því að fara út á daginn. Við erum hluti af náttúrunni og tengjumst henni lífræðilega. Maðurinn hefur einnig næmt fegurðarskyn og það hefur góð áhrif á alla að upplifa og horfa á fegurð. Náttúrufegurð er þar ekki undanskilin.
Manngert umhverfi hvort sem það er á heimilum eða vinnustöðum getur verið streituvaldandi. Á heimilinu bíða alls konar verkefni, rétt eins og á vinnustaðnum og stundum berst hávaði eða annað áreiti um byggingar. Margir finna fyrir andlegri þreytu eftir langvarandi setur innandyra, áhorf á skjái, lestur eða dagleg störf. Að fara út hvort sem það er til að ganga um hverfið sitt eða fara á notleg útivistarsvæði í nágrenni heimilisins er endurnærandi. Kyrrðin fjarri áreiti borga og bæja er dásamleg og nauðsynleg í samfélagi þar sem nánast aldrei er þögn. Það er ekki bara upplifunin eða það að horfa í kringum sig sem veitir hvíld heldur einfaldlega sú tilfinning að vera hluti af umhverfinu um stund, hafa engar skyldur aðrar en að setja annan fótinn fram fyrir hinn og halda áfram veitir einstaka ró.
Náttúran hefur einnig lag á að síast inn án þess að við þurfum að hafa fyrir því, niður í vatn, þytur vindsins í trjánum, ský á himni og sólargeislar. Við upplifum þetta án þess í raun að taka eftir því og sýt hefur verið fram á að allt þetta ýtir undir framleiðslu vellíðanarboðefna í líkamanum. Ferskt, svalt loft hjálpar okkur einnig að anda dýpra og dýpri öndun ýtir undir slökun.
Föst í neikvæðum hugsunum
Þegar fólki líður illa hefur það tilhneigingu til að festast í neikvæðum hugsunum. Að anda ofan í maga og hreyfa sig getur hjálpað til við að rjúfa vítahringinn. Sérfræðingar hafa lengi vitað að hreyfing utandyra hefur góð áhrif á fólk sem glímir við áfallastreitu, fólk með ADHD og vægt þunglyndi. Til dæmis má nefna að í nýlegri breskri rannsókn kom fram að ef fólk á öldrunarheimili fékk tíu mínútna útiveru á hverjum degi varð marktækur munur á líðan þess á ótrúlega skömmum tíma.
Það þarf því ekki að fara í langar gönguferðir um fjöll og firnindi eða hlaupa hálfmaraþon til að útivist skili heilsubót. Það nægir að taka tíu mínútna gönguferð um nærumhverfið. Bara það að upplifa alls konar veður er nóg. Sumir kjósa að sitja úti dag hvern, aðrir að hugleiða undir berum himni og enn aðrir að ganga eða skokka. Það má einnig bæta öðrum tilgangi við útiveruna, ljósmyndun, fuglaskoðun, málun og teiknun eða garðyrkja. Allt gefur þetta aukabónus og dregur úr streitunni ekki hvað síst ef síminn fær hvíld einmitt þessa stund sem þú ákveður að fara út. Næst þegar þér finnst þig vanta ferskt loft, hlustaðu þá á líkamann og skelltu þér út.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







