Þessa girnilegu uppskrift fundum við á vefnum Fiskur í matinn sem Norðanfiskur heldur úti. Höfundur hennar er Leifur Kolbeinsson yfirmatreiðslumaður á Marshall veitingahúsi + bar. Uppskriftin er ætluð fyrir fjóra.
- 800 g ýsa
- 200 g rækjur
- 160 g heilar möndlur með hýði
- Salt og pipar
- Safi úr 1 sítrónu
- 2 knippi steinselja, söxuð
- Ólífuolía
- 100 g smjör
Saxið möndlurnar í u.þ.b. þrennt og setjið í eldfast mót, blandið smá ólífuolíu og saltið smá. Bakið við 150°C í u.þ.b. 15–20 mín. án þess þó að þær brenni. Bræðið smjörið á pönnu og steikið ýsuna á snarpheitri pönnunni, kryddið með salti og pipar. Stráið yfir söxuðu möndlunum ásamt safanum úr sítrónunni og rækjunum, veltið á pönnunni í smá stund og berið fram.