Þjóðbúningurinn í öndvegi á þjóðhátíð Árbæjarsafns

Árbæjarsafn setur íslenska þjóðbúninginn í öndvegi á þjóðhátíðardeginum 17. júní. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá verður fí safninu sem hefst kl. 13. Sýningin er sett upp í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins verður frítt inn. Safnið sendi frá sér fréttatilkynningu að þessu tilefni og þar stendur meðal annars. „Að vanda eru þjóðbúningurinn og þjóðdansar í öndvegi á þessum hátíðardegi og eru gestir hvattir til að mæta klæddir eigin þjóðbúningi.

Fjallkonu Árbæjarsafns verður skautað í safnhúsinu Lækjargötu kl. 14 en eftir það hefst kennsla í þjóðdönsum undir leiðsögn Atla Freys Hjaltasonar. Nokkrir félagar úr Fornbílaklúbbnum mæta með drossíur sínar sem verða til sýnis á víð og dreif um safnsvæðið.

Skátar verða með fjáröflun á safntorginu og Slysavarnardeildin í Reykjavík verður með veitingasölu við Dillonshús. Litríku og góðu sleikjóarnir verða á sínum stað í Krambúðinni. Harmóníkuleikur verður við torgið, Árbæ og við Dillonshús.

Komið og takið þátt í 80 ára afmæli lýðveldisins með okkur á Árbæjarsafni!“

Ritstjórn júní 14, 2024 07:00