Tengdar greinar

Svart og hvítt

Nú stendur yfir sýning á verkum myndmennta- og skriftarkennarans Þorvaldar Jónassonar í Menningarhúsinu Spönginni.

Þorvaldur hefur í námi og starfi rannsakað og tileinkað sér  hinar ýmsu leturgerðir og sýnir kallígrafíu og leturverk þar sem sjá má þróun leturgerðar allt frá tímum skömmu fyrir Krists burð til okkar daga. Tæpt er á sögulegum þáttum til glöggvunar. Á sýningunni eru enn fremur nokkrar teikningar sem hann hefur unnið á seinni árum, eins og segir í fréttatilkynningu frá Borgarbókasafninu. Þar segir einnig:

„Þorvaldur starfaði um langa hríð sem myndmennta- og skriftarkennari á höfuðborgarsvæðinu og hefur kennt ófáum Reykvíkingum að draga til stafs. Hann lauk kennaraprófi árið 1964 og síðar framhaldsnámi í Osló, þar sem hann nam skriftgrafík. Um árabil var Þorvaldur stundakennari við Kennaraháskólann og sinnti einnig fullorðinsfræðslu. Hann hefur einnig unnið við skrautritun og myndskreytingar fyrir ýmsa opinbera aðlia. Árið 2009 hlaut hann Íslensku menntaverðlaunin.“

Sýningin stendur til  23. nóvember, hana má skoða á opnunartíma safnsins, mán-fim 10-18, fös 11-18 og lau 11-16.

Ritstjórn október 20, 2024 17:50